Fréttabréf 5

 

 

Fundur með arkitektum 8. janúar

Á fundinn mættu: Gísli Ragnarsson, Jóhann Sigurðsson (arkitekt), Sigurður Grímsson (verkfræðingur), Helmut Hinrichsen, Vigfús Þ. Jónsson.

 

Fjallað var um útfærslur á eldhúsi, upptökuveri og stýringarrými fyrir hljóð og ljós í salnum. Skólinn hafði lagt fram tillögu um innréttingu eldhúsins svo og lista yfir innréttingar, tæki og tól fyrir upptökuverið og stýringarrýmið. Fengum við innréttingar teiknaðar hjá Jóhanni Ólafssyni & Co ehf. og fór Sigurður Karlsson, matreiðslumaður, yfir tillögurnar og gerði athugasemdir. Halldór Árni Sveinsson, fjölmiðlatæknikennari í Flensborgarskóla, gerði fyrir okkur ítarlegan lista yfir tækjabúnað og innréttingar í upptökuveri og stýringarrými.

 

Einnig var rætt um lagnir í fjölnotasalnum, netþjónasalinn, viðbótarskrifstofurými og raflæsingar í öllum hurðum í nýbyggingunni. Fengum við þau svör að gert er ráð fyrir netþjónasal í tæknirými í kjallaranum undir nýbyggingunni. Ekki er hins vegar gert ráð fyrir viðbótarskrifstofurými og þarf skólinn því að láta teikna þessar breytingar og reyna að koma þeim inn í útboðsgögnin á seinna stígi. Sömu svör fengum við varðandi raflæsingar og eru það mikil vonbrigði að skólinn sé tilneyddur til að leggja í eigin kostnað og vinnu til að bæta þessum verkþáttum við eftirá þegar auðvelt hefði verið að koma þeim inn í lagnateikningar áður en gengið verður frá útboðsgögnum.

 

Arkitektar óskuðu eftir lista um fastan búnað í kennslustofum.

 

Fundur í stýrihópnum 11. janúar

Á fundinn mættu: Gísli Ragnarsson, Helmut Hinrichsen, Edda Benónýsdóttir, Heiða B. Sturludóttir og Vigfús Þ. Jónsson.

 

Helmut kynnti tillögur arkitekta og neikvæð svör verkkaupa við breytingaróskir stýrihóps. Hópurinn ræddi skipun stjórnunarálmu og þær breytingar á teikningu fyrstu hæðar til að auka skrifstofurými. Fylgja teikningar á báðum hæðum stjórnunarálmu þessu fréttabréfi og verða þær kynntar fyrir starfsmönnum. Eru teikningarnar núna á lokastigi og er gert ráð fyrir því að útboðsgögnin liggi fyrir 15. febrúar.

 

Fundur með verkkaupum og arktitektum 15. janúar

Á fundinn mættu: Örlygur Geirsson (fulltrúi ráðuneytis í samráðsnefndinni), Gísli Ragnarsson og Sigríður Ólafsdóttir (arkitekt).

 

Örlygur hafði beðið um þennan fund með skólameistara til að fara yfir stöðu mála. Kom lítið fram annað á þessum fundi en að ráðuneytið er ekki tilbúið að fallast á breytingaróskir okkar. Gert er ráð fyrir því að útboðsgögnin liggi fyrir 15. febrúar og ef verkið dragist væri alls ekki víst að framkvæmdir gætu hafist á þessu ári.

Var óskað eftir öðrum fundi með fulltrúa frá Fasteignum ríkisins til að samræma framkvæmdir við nýbygginguna við breytingar á gamla hluta skólans.


Stjórnunarálma 1. hæð

 

Stýrihópurinn ítrekaði þörfina á viðbótarskrifstofurými og er gert ráð fyrir tveimur skrifstofum til viðbótar á þessari teikningu sem skólinn lét hanna fyrir sig.

Ókostur er að skrifstofan er gluggalaus en hins vegar er opið rými með stórum gluggum beint fyrir framan skrifstofu. Auk þess er gert ráð fyrir góðri loftræstingu í allri nýbyggingu. Núverandi skipan af stjórnunarálmu bæði á fyrstu og annarri hæð hafði verið samþykkt af stjórnendum skólans síðastliðið sumar.

 

Smelltu á myndina til að stækka hana.

 

 

Stjórnunarálman 2. hæð

 

Á annarri hæð er vinnuherbergi starfsmanna, skrifstofurými m.a. fyrir kennslustjóra Heilbrigðisskólans, framreiðslueldhúsi og matsal fyrir starfsmenn.

 

Smelltu á myndina til að stækka hana.