Ferðadagur miðvikudagur 4. mars
Skautar í
Skautahöll Reykjavíkur.
Viltu prófa að skora mark með kylfu eða bara svífa um á svellinu á eigin
forsendum. Kjörið tækifæri til að njóta góðrar líkamsræktar!
Kostnaður: aðgangur + skautar 600 krónur,
bara aðgangur 400 krónur.
Fjöldi: ótakmarkaður.
Tímasetning: Mæting niðrí Skautahöll Reykjavíkur kl.11:00
Álverið í Straumsvík. Vissir þú að flestir nota ál oft á dag, oft án þess að taka eftir því. Hægt er að endurvinna álið aftur og aftur án þess að það tapi eiginleikum sínum.
Kíktu inn í kerskálana og sjáðu hvernig álið er unnið.
Kostnaður: 0 krónur.
Fjöldi: 20 manns.
Tímasetning: rúta fer frá skólanum kl. 10:30
Varðskipin í
Reykjavíkurhöfn.
Vá
hvað væri gaman að skoða gráu skipin við höfnina. Til hvers eru þau notuð eða
eru þau eitthvað notuð yfir höfuð!
Kostnaður: Strætóferð í miðbæinn.
Fjöldi: 25 manns.
Tímasetning: Mæting í anddyri skólans kl.10:00
Nói og Sírius. Hvernig er framleiðsluferlið á nammi. Tilvalin ferð fyrir þá sem eru komnir í páskafíling og vilja finna lykt sem fá bragðlaukana til að verða trítilóða!
Nánar:
http://www.noi.is/
Kostnaður: Strætómiðar.
Fjöldi: 18 manns.
Tímasetning: mæting við aðalinngang skólans – rútan leggur af stað kl.12:15 frá skólanum
Útvarpshúsið. Hvernig er umhverfi hljóðnemanna sem við höfum öll heyrt svo oft í? Hvað leynist á bak við slétt og felld stúdíóin? Einstakt tækifæri til að heimsækja Útvarp og Sjónvarp í einni ferð.
Nánar:
http://ruv.is/heim/upplysingar/um/
Kostnaður: 0 krónur.
Fjöldi: hámark 15 manns.
Tímasetning: Mæting við
aðalinngang kl.10:30
Gljúfrasteinn. Hús nóbelsskáldsins Halldórs Laxness er perla í Mosfellsdal, ekki aðeins vegna bókmenntanna sem voru skrifaðar þar heldur er einnig fróðlegt að skoða menningarheimili frá síðustu öld.
Nánar:
http://www.gljufrasteinn.is/
Kostnaður:
0 krónur.
Fjöldi: hámark 45 manns.
Tímasetning: rúta fer frá skólanum kl.10:30
Þjóðminjasafnið. Þetta safn slær alltaf í gegn. Nú stendur þar yfir sýningin Endurfundir, spennandi sýning á ýmsu því sem fornleifafræðingar hafa rótað upp á allra síðustu árum.
Nánar:
http://www.natmus.is/
Kostnaður:
0 krónur.
Fjöldi: hámark 35 manns.
Tímasetning:
Eru öskukallar í
Sorpu?
Málið
verður kannað og áralöng míta rannsökuð, þ.e. hvort öllu flokkaða ruslinu okkar sé hent í einn og sama hauginn.
Kostnaður: 0 Krónur
Fjöldi: Hámark 30.
Tímasetning: rútan leggur af stað kl.12:15 frá FÁ
Hjólreiðatúr í
Elliðaárdal.
Hjólað
frá FÁ sem leið liggur eftir hjólastígum niður í Elliðaárdal. Fuglasöngur,
árniður, trjáilmur. Dásamlegt fyrir líkama og sál.
Kostnaður: 0 krónur
Fjöldi: ótakmarkaður
Tímasetning: Koma á reiðhjólum. Mæting við aðalinngang skólans kl.10:20
Alþingi og
sögulegur göngutúr um miðbæinn.
Hvernig
sitja þingmenn? Er lím í sumum sætunum? Hvar var lækurinn í lækjargötu? Þessum
spurningum og öðrum verður svarað. Skiljið eggin eftir heima.
Kostnaður: 0 krónur
Fjöldi: hámark 30
Tímasetning: Mæting við Alþingishúsið við Austurvöll kl.11:50
Gas gas! Lögreglan. Hvernig er að vera lögga í Reykjavík?Tilvalin ferð til að fræðast um starf lögreglunnar og jafnvel að kíkja í steininn...
Nánar:
http://logreglan.is/default.asp?cat_id=73
Kostnaður: Strætómiði.
Fjöldi: hámark 20 manns.
Tímasetning: Mæting við aðalinngang Lögreglustöðvarinnar Hverfisgötu kl.10:50
Útreiðartúr með
Íshestum.
Hneggjandi
skemmtilegur útreiðartúr um Heiðmörkina í klukkustund.
Kostnaður: 2000 krónur
Fjöldi: Lágmark 5 – Hámark 30.
Tímasetning: rúta leggur af stað frá skólanum kl.12:00
Bjó Ingólfur
Arnarson í Aðalstræti?
Landnámssýningin
í Aðalstræti varpar ljósi á landnám Íslands og uppruna okkar.
Glæsileg
sýning sem vakið hefur athygli.
Kostnaður: 0 krónur
Fjöldi: Hámark 30 manns.
Tímasetning: Mæting í anddyri
skólans kl.10:30
Hvalaskoðun í
Faxaflóa.
Frábært
tækifæri til að sjá þessi stærstu spendýr jarðar á gjafverði fyrir nemendur.
Í
ferðinni getið þið spurt: Hvað jafnast
steypireiður á við marga fíla í tonnum talið?
Ef
veður verður leiðinlegt verður siglt um sundin í hálftíma og stutt fræðsluganga
í Viðey.
Kostnaður: 2000 krónur ( Ef Viðeyjarferð þá
aðeins 400)
Fjöldi: lágmark 30, hámark 100.
Tímasetning: 12:00 í anddyri
skólans.
Heilla sjúkrahúsin
þig?
Landspítalinn
tekur ykkur opnum örmum og kynnir störf lækna,
hjúkrunarfræðinga,
geislafræðinga og annarra háskólamenntaðra
sem
starfa á sjúkrahúsum.
Kostnaður: 0 krónur.
Fjöldi: Hámark 20.
Tímasetning: Mæting kl.11:20
við Eiríksstaði (beint fyrir aftan Hallgrímskirkju) eða frá skólanum kl. 10:30
Orkuveituhúsið; Steingrímur Eyfjörð - Í fótspor forfeðranna, sýning Orkuveituhúsinu.
Nánar: http://www.or.is/
Kostnaður: 0 krónur.
Fjöldi: Hámark 30.
Tímasetning: Bæjarhálsi 1 – mæting kl.11:00 þar
Ísaga: hefur aðsetur að Breiðhöfða í Reykjavík. Þar eru tvær af þremur verksmiðjum fyrirtækisins, áfyllingastöð, skrifstofa, verslun o.fl. Hjá fyrirtækinu starfa 25 manns.Önnur af tveimur verksmiðjum fyrirtækisins í Reykjavík vinnur 900 m3/klst. af súrefni og köfnunarefni, en hin framleiðir árlega um 40 tonn af asetylengasi. Þriðja verksmiðjan er að Hæðarenda í Grímsnesi. Þar er náttúruleg kolsýra unnin úr jarðhitavatni. Enn aðrar lofttegundir, sem ÍSAGA selur eru innfluttar, eins og t.d. argon og helíum.
Nánar: www.aga.is
Kostnaður: 0 krónur.
Fjöldi: Hámark 25.
Tímasetning:
Veðurstofa Íslands:
var stofnuð 1.
janúar 1920. Þá tóku Íslendingar við umsjón veðurathugana af Dönum. Fyrstu árin
var hún deild í Löggildingarstofunni en sú stofnun var lögð niður í ársbyrjun
1925 og varð Veðurstofan þá sjálfstæð stofnun. Árið eftir voru sett lög um
Veðurstofu Íslands. Megintilgangur Veðurstofu Íslands er að auka öryggi og
hagkvæmni í rekstri samfélagsins með því að:
• vakta, greina, upplýsa, rannsaka,
veita ráðgjöf og spá fyrir um hegðan náttúrunnar og náttúruvá
• tryggja söfnun og vörslu gagna og
þekkingar um langtímaþróun veðurfars og annarra umhverfisþátta sem eru á
forræði stofnunarinnar
Veðurstofan vaktar hættu á ofviðri, snjóflóðum, aurskriðum, jarðskjálftum, eldgosum, sjávarflóðum og ísingu, svo og hafísútbreiðslu, og sendir út viðvaranir, spár og aðrar upplýsingar til að draga úr hættu á manntjóni og öðrum skaða.
Stofnunin veitir almenningi, atvinnulífi og stjórnvöldum ráðgjöf og þjónustu þar sem sérþekking hennar kemur að notum, s.s. vegna loftslagsmála, skipulagsmála, mannvirkjagerðar, ofanflóðavarna og áætlanagerðar.
Landsnet: á og rekur allar megin flutningslínur rafmagns á Íslandi. Til stofnlínukerfisins teljast línur sem eru með 66 kV spennu og hærri auk nokkurra 33 kV lína. Til flutningskerfisins teljast einnig öll megin tengivirki á Íslandi. höfuðstöðvar skoðaðar:
Nánar: http://www.vedur.is/
http://www.landsnet.is/
Kostnaður: 0 krónur.
Fjöldi:
Ótakmarkaður.
Tímasetning: Bústaðavegi 9 – Mæting kl:11:00
Skíðaferð ef veður leyfir; lagt af stað
frá skólanum kl. 11:50. Rútan frítt. Verð: Dagskort 1500kr. Leiga
skíðaútbúnaðar+dagskort 3.500.
Skíðagöngunámskeið verður í boði endurgjaldslaust, (leiga á útbúnaði kostar). Lagt af stað heim kl. 16.30. Gott að taka með sér nesti.
Rúta leggur af stað frá skólanum kl.11:50 (ath. borgað á staðnum fyrir dagskort og skíðaleigu) – ATH veður á þriðjudag?
Mjólkursamsalan : Hrámjólk til framleiðslunnar berst til mjólkurstöðvanna með tankbílum og er henni dælt í gegnum kælikerfi og safnað í geymslutanka. Þaðan fer mjólkin svo inn í vinnsluferlið. Mannshöndin kemur hvergi nærri mjólkinni frá því að hún er komin í tankbílinn uns hún er komin á borð neytenda. Mjólkin flæðir í sírennsli í lögnum um vinnslusalina og er rennslinu stýrt með tölvum. Öll mjólk sem berst í mjólkurstöðvarnar er gerilsneydd með því að snögghita hana og snöggkæla aftur. Þannig er komið í veg fyrir að í henni leynist sýklar. Mjólkin er gerilsneydd, skilin, hreinsuð og fitusprengd í samhangandi ferli. Fylgst er með gangi vinnslunnar á skjámyndum sem gefa nákvæmar upplýsingar um magn, hitastig og afurðategund í hverjum tanki, flæði gegnum hita- og kælitæki, o.m.fl. Að endingu er mjólkurafurðunum safnað í stóra tanka áður en þær fara til pökkunar í neytendaumbúðir eða áframhaldandi vinnslu s.s. ostagerð. Fullunnar vörur eru fluttar inn á kælilager þar sem þær bíða útkeyrslu. Allt framleiðsluferlið lýtur ströngu gæðaeftirliti og unnið er samkvæmt sérstöku eftirlitskerfi sem tryggir að sama vara sé ávallt framleidd á sama hátt þannig að ekki sé munur á henni frá degi til dags. Könnuð eru sýni úr fullunnum vörum til að fylgjast með gæðum og geymsluþoli. Mjólkursamsalan er eitt stærsta dreifingarfyrirtæki landsins. Bílar félagsins flytja á ári hverju sem nemur um 120.000 tonnum af mjólk frá framleiðendum til af afurðastöðvanna á ári. Tilbúnar afurðir eru fluttar í stórum stíl til dreifingarmiðstöðva um allt land. Auk þess fer fram staðbundin dreifing til þrjú til fimm þúsund viðskiptavina víðsvegar um allt land.
Nánar: http://www.ms.is/
Kostnaður: 0 krónur.
Fjöldi: 20
Tímasetning: 11:00 (Strætó, leið 19 fer frá Suðurlandsbrautinni kl. 10.36 uppí Hraunbæ en þaðan er stutt að ganga í MS.) Mæting við Mjólkursamsöluna, Bitruhálsi 1. kl.10:50
Gjáin í Eldborg og Bláa Lónið: Sýning Hitaveitu Suðurnesja um jarðfræði, jarðhita og vinnslu orku úr iðrum jarðar við orkuverið í Svartsengi. Ísland býður einstök skilyrði til að sjá og rannsaka flest, sem varðar jarðfræði, eldvirkni og jarðhita, því að landið er jarðfræðilega ungt og enn þá í mótun. Landið er eins og gluggi inn í fortíð og framtíð þessarar þróunar, þannig að með lestri jarðlaga má leiða líkur að því, sem koma skal. Hérlendis eru stærstu jöklar og mestu jökulsár Evrópu, mestu há- og lághitasvæðin, óvenjulega mikil eld- og jarðskjálftavirkni auk stórbrotinnar náttúru.
Nánar: http://www.nat.is/travelguide/ahugav_st_gjain_eldborg.htm http://www.bluelagoon.is/
Kostnaður: 1200 krónur.
Fjöldi: Hámark 70 manns.
Tímasetning:
Listasafn
Reykjavíkur/Hafnarhúsið og Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
Í Hafnarhúsi eru kynntar nýjustu
stefnur og straumar í myndlist – nýjar leiðir og tilraunir með tjáningarform þar
sem listmiðillinn er í stöðugri endurskoðun.
Sýning á
verkum Alfreðs Flóka er m.a. í sýningu núna.
Nánar:
http://www.listasafnreykjavikur.is/desktopdefault.aspx
Ljósmyndasafn Reykjavíkur
(í sömu ferð).
Grófarhúsinu,
Tryggvagötu 15, 6.hæð – við hliðina á Hafnarhúsinu.
Ljósmyndasafn
Reykjavíkur er eina sjálfstætt starfandi ljósmyndasafnið á landinu.
Hlutverk Ljósmyndasafns Reykjavíkur er að varðveita ljósmyndir, glerplötur, filmur
og skyggnur með þeim hætti að borgarbúar og gestir þeirra hafi sem bestan
aðgang að ljósmyndun í eigu safnsins.
Nánar:
http://www.ljosmyndasafnreykjavikur.is/
Mæting
við inngang Listasafn Reykjavíkur (Hafnarhús, við Tryggvagötu) kl: 13:00.
Nemendur
koma sér sjálfur á staðinn (strætó).
Hámarksfjöldi:
25
Kjarvalsstaðir
Listasafn
Reykjavíkur, Kjaravalstaðir við Flókagötu (Miklatún).
Mæting í anddyri skólans kl. 10:30 eða Kjarvalstaða (við Miklatún) kl.11:00. Nemendur koma sér sjálfir á staðinn (strætó)
Sýningarsalir safnsins eru nýttir markvisst fyrir vandaðar málverkasýningar, höggmyndir og hönnun.
Nánar:
http://www.listasafnreykjavikur.is/desktopdefault.aspx
Þjóðleikhúsið og Þjóðmenningarhús
– heimsókn og kynningarferð.
Heimsókn í Þjóðleikhúsið – kíkt á
bakvið tjöldin:
Á hverju leikári
starfa milli fjögur og fimm hundruð manns í Þjóðleikhúsinu. Í hverri
leiksýningu er fólgin mikil vinna. Samhliða leikæfingum og vinnu listrænna
stjórnenda hverrar sýningar vinnur starfsfólk ólíkra deilda Þjóðleikhússins
vikum saman að undirbúningi. Má þar nefna sviðsmenn, starfsfólk saumastofu,
leikmunadeildar, hárgreiðslu- og förðunardeilda, ljósadeildar, hljóðdeildar, kynningar- og fræðsludeilda.
Nánar: http://www.leikhusid.is
http://www.fd.leikhusid.is/
Þjóðmenningarhús
(fyrir neðan Þjóðleikhúsinu):
Þjóðmenningarhúsið er vettvangur fyrir íslenskan þjóðararf í hnotskurn. Starfsemin felst einkum í fjölbreyttu sýningahaldi. Gerðir eru samningar við viðkomandi aðila, svo sem höfuðsöfn og aðrar stofnanir um sýningahald til langs eða skamms tíma. Þjóðmenningarhúsið er þannig m.a. sameiginlegur vettvangur íslenskra þjóðmenningarstofnana með vönduðum sýningum á úrvali merkra þjóðargersema. Aðstaða er fyrir fundi, samkomur, listviðburði, opinberar athafnir og aðra viðburði.
Nánar:
http://www.thjodmenning.is/
Mæting við aðalinngang
Þjóðleikhússins, Hverfisgötu 19 kl.13:00. Nemendur koma sér sjálfir á
staðinn (strætó).
Hámarksfjöldi:
30
Barber leikhúsið /
Barber theather Hverfisgötu
Barber leikhúsið er rakarastofa sem er með lítið
leikhús- og bíósýningarými fyrir innan. 1-2 klukkustunda bíósýning á gömlum 8mm
filmum. Nánar auglýst síðar hvaða myndir verða sýndar.
Mæting í
leikhúsið á Hverfisgötu 37 (á horni) kl.18:00
Nemendur
koma sér sjálfir á staðinn.
Verð: 500 kr. Hámarsfjöldi: 16
Nuddskóli Íslands, Asparfelli 12. Hvernig er að nudda eða vera nuddaður? Sjáið með eigin augum.
Nánar: www.nuddskoli.is
Kostnaður: Strætómiði.
Fjöldi: Hámark 15 manns.
Tímasetning: 10:15 – 12:00
Sjósund. Loksins tækifæri til að vera hipp og kúl. Nemendur FÁ skella sér í sjóinn undir öruggri leiðsögn gamals sjóhunds.
Kostnaður: 0 krónur.
Fjöldi: Ótakmarkaður.
Tímasetning: mæting við pottana kl.10:30
Nuddskólinn – Mæting við aðalinngang, Asparfelli 12, kl.10:30