|
Áfallaáætlun
Fjölbrautaskólans við Ármúla
1.
Inngangur
Fjölbrautaskólinn
við Ármúla er stór vinnustaður með um 1.000 nemendur í dagskóla og um 120
starfsmenn. Í svo stórum hópi er ljóst að stundum þarf að bregðast við áföllum
sem upp kunna að koma, bæði meðal nemenda og starfsfólks. Þegar áföll eiga
sér stað er gott að fyrir liggi áætlun um hvernig best sé að bregðast við.
2. Áfallaráð
Hlutverk
áfallaráðs er gerð vinnuáætlunar um hvernig skuli bregðast við þegar áföll
hafa orðið svo sem dauðsföll, slys, eða aðrir atburðir sem líklegir eru til
að kalla fram áfallastreitu og/eða sorgarviðbrögð. Áætlunin felur í sér hvað
skuli gera, í hvaða röð og hver sinni hvaða hlutverki.
Dæmi um
áföll sem kalla á slíka vinnuáætlun eru:
- Slys/alvarleg
veikindi nemenda/starfsmanns í skóla/utan skóla.
- Andlát
starfsmanna/nemanda.
- Aðrir
ógnvekjandi atburðir sem snerta hóp starfsmanna eða nemenda s.s. ef
eldur kemur upp í húsnæði skólans, náttúruhamfarir eða stórslys.
Í
áfallaráði sitja:
- Skólameistari/aðstoðarskólameistari.
- Námsráðgjafi.
- Skólahjúkrunarfræðingur.
- Kennari.
- Starfsmaður
skrifstofu.
Skólameistari
fer með stjórn ráðsins og kallar það saman þegar þörf krefur en eigi sjaldnar
en einu sinni á önn. Áfallaráð fer með verkstjórn þegar válegir atburðir
gerast, kynnir sér skyndihjálp og sálræna skyndihjálp og miðlar þeirri
þekkingu til annarra starfsmanna skólans.
3. Upplýsingar
- Sá sem
fyrstur fær upplýsingar um dauðsfall eða slys, kemur boðum til skólameistara/aðstoðarskólameistara
sem strax grípur til viðeigandi ráðstafana. Skrifstofa skólans er
gjarnan milliliður sem fyrst fær tilkynningu um atburðinn.
- Skólameistari,
aðstoðarskólameistari eða hjúkrunarfræðingur hafa samband við nánustu
aðstandendur hins látna/slasaða.
- Ef
atburður er tilkynntur til allra starfsmanna sameiginlega þarf að kanna,
ef kostur er, hvort einhverjir í hópnum eru nánir viðkomandi ef svo vill
til þurfa þeir að fá fregnina einslega.
- Kennarar
skrái niður viðbrögð sín og nemendahópanna sem nemandinn tilheyrir og
kemur þeim upplýsingum til skólameistara.
4.
Viðbrögð við mismunandi áföllum
A. Slys/alvarleg
veikindi
- Kennurum
og nemendum sé greint frá því ef einhver úr þeirra hópi hefur lent í
alvarlegu slysi/veikindum og þarf að vera lengi fjarverandi af þeim
sökum.
- Kennurum
og samnemendum sé greint frá alvarlegu slysi/veikindum í fjölskyldu
nemanda. Skal það gert í samráði við nemandann og fjölskyldu hans.
- Verði
nemandi fyrir slysi í skólanum eða í ferð á vegum skólans, skal haft
samband við lögreglu og láta skólameistara vita. Skólameistari lætur aðstandendur
vita svo fljótt sem auðið er.
- Verði
starfsmaður fyrir slysi á skólatíma hefur skólameistari samband við
aðstandendur.
- Skólastjórnendur
gæti þess eins og mögulegt er, að enginn fari heim með rangar
upplýsingar ef slys hefur orðið í skólanum/í skólaferð.
- Skólameistari
er eini tengiliður skólans við fjölmiðla um atburði sem áfallaráð
fjallar um.
B. Andlát
nemanda utan skólans.
- Fengin er
staðfesting á andláti og leitað réttra upplýsinga um aðdraganda þess.
- Talað er
við skyldmenni og vini hins látna innan skólans áður en öðrum er
tilkynnt um andlátið.
- Kennurum
tilkynnt um andlátið eins fljótt og kostur er og einnig um aðdraganda
þess.
- Flaggað
skal í hálfa stöng þann dag sem andlátsfregn berst og einnig þann dag
sem jarðað er, en reynt að halda uppi eins eðlilegu skólastarfi og unnt
er.
- Skólameistari/kennari/aðrir
fari heim til nemanda ef kostur er.
- Skólastjórnendur
sendi samúðarkveðjur til fjölskyldu hins látna.
C. Andlát
starfsmanns utan skólans
- Fengin er
staðfesting á andláti og leitað réttra upplýsinga um aðdraganda þess.
- Talað er
við skyldmenni og vini hins látna innan skólans áður en öðrum er
tilkynnt um andlátið.
- Starfsfólki
skólans tilkynnt um andlátið eins fljótt og kostur er og réttar
upplýsingar um tildrög þess.
- Flaggað
skal í hálfa stöng þann dag sem andlátsfregn berst og einnig þann dag
sem jarðað er, en reynt að halda uppi eins eðlilegu skólastarfi og unnt
er.
- Skólameistari/kennari/aðrir
fari heim til fjölskyldu starfsmanns.
- Skólastjórnendur
sendi samúðarkveðjur til fjölskyldu hins látna.
D. Andlát
í skólanum
- Eigi
andlát sér stað í skólanum þarf að kalla til lögreglu og prest sem sjá
um að aðstandendur fái réttar upplýsingar um málið.
- Sýni
fjölmiðlar áhuga er skólameistari eini tengiliður skólans við þá. Allir
aðrir skulu vísa á hann varðandi upplýsingar.
- Að öðru
leyti skal fylgja leiðbeiningum í köflum þar sem fjallað er um andlát
starfsmanna og nemenda utan skólans.
E. Andlát
aðstandenda nemenda
- Látist
foreldri eða annar náinn aðstandandi nemanda skal kennurum greint frá
því og viðkomandi „bekkjarfélögum” tilkynnt það sérstaklega. Þetta fer
þó eftir því hversu vel hópurinn hefur tengst og skal gert í samráði við
nemandann.
- Nemanda
skal tryggð aðstoð innan skólans eftir því sem þörf krefur og stuðningur
varðandi endurkomu í skólann.
F. Ofbeldisverk/líkamsáras
í skólanum
- Nemandanum
(þolanda/geranda) verði boðin aðstoð eða viðtal, eftir eðli atviksins.
- Ef margir
verða vitni að atburðinum þarf að útskýra aðstöðu nemandans
(þolandans/gerandans) fyrir hópnum.
- Haft
verði samráð við forráðamenn ef nemandinn er yngri en 18 ára.
5. Áframhaldandi
stuðningur eftir áfallið
- Venjubundið
skólastarf sefar óttann og kvíðann sem fylgir áföllum. Mikilvægt er að
starfsmenn skólans séu eins eðlilegir og hlýlegir og þeim er unnt.
Tillitssemi og virðing felst m.a. í því að staldra ekki of lengi við
áföllin heldur halda áfram lífsgöngunni þó sorgin sé til staðar.
- Þeir
einstaklingar og hópar sem áfallið hefur mest áhrif á þurfa að eiga
aðgang að stuðningsaðilum innan skólans sem vinna með þeim úr áfallinu.
Mikilvægt er að kennarar gefi nemendum kost á að ræða atburðinn ef þeir
kjósa það, en jafnframt að bjóða upp á einstaklingsviðtöl, t.d. hjá
námsráðgjafa.
- Starfsmenn
áfallaráðs hlúi að nemendum og starfsfólki eins og kostur er.
6.
Viðbrögð við bráðatilvikum í skólanum
•
Kennari/starfsmaður:
–
Sinnir þeim veika.
–
Sendir eftir aðstoð á
skrifstofu* Ekki hringja sjálfur. Mikilvægt er að hafa stjórnina á
vettvangi.
–
Gætir þess að enginn
yfirgefi vettvang í uppnámi.
* Á skrifstofu er tekið við
stjórninni í þessari röð: Skólameistari, aðstoðarskólameistari,
hjúkrunarfræðingur, námsráðgjafi.
|