Vikupistill
9. janúar 2012
Ég óska nemendum og starfsmönnum FÁ gleðilegs árs og þakka samstarfið á liðnu ári. Ég vænti þess að skólastarfið árið 2012 verði árangursríkt. Svo mun verða ef við leggjum okkur öll fram.
Nokkrar breytingar eru í starfsmannahópnum frá því á haustönn. Kristjana og Kristján Þór hættu störfum nú um áramótin og verður þeim þakkað sérstaklega við skólaslit í vor. Kristján Thorlacius hætti sem áfangastjóri þann 1. nóvember sl. en hann mun aðstoða nýjan áfangastjóra, Guðrúnu Narfadóttur, eitthvað áfram. Gunnar Geir er að hefja doktorsnám nú á vorönn og fer því úr barneignarleyfi í launalaust leyfi. Breyting verður á starfsemi mötuneyta skólans. Árný og Hulda sjá um verslun nemenda í anddyrinu og verslun starfsmanna á kennarastofu. Þröstur rekur áfram mötuneyti skólans og hefur hann Björn sér til aðstoðar. Hann hefur hug á að auka þjónustuna í matsal skólans. Ingibjörg Ásgeirsdóttir hóf störf á skrifstofunni í desember en áður hafði hún leyst af í nokkrar vikur á bókasafninu. Sandra Þóroddsdóttir náms- og starfsráðgjafi hóf störf í desember og mun hún halda sérstaklega utan um nemendahópinn „Nám er vinnandi vegur“. Ég býð Ingibjörgu og Söndru velkomnar til starfa í FÁ.
Í dag eru skráðir 1011 nemendur í dagskólanum sem er um 150 fleiri en hófu nám á vorönn í fyrra. Við gerum ráð fyrir að fjarnámsnemar verði um 1500. Ef það gengur eftir verða ársnemar skólans á vorönn um 580. Nemendakvótinn í fjárlögum er aðeins 1015 ársnemar svo að við verðum búin með næstum 60% af nemendakvóta ársins í vor. Þá er sumarönn og haustönn eftir. Töluverð óvissa ríkir um greiðslur fyrir nemendur sem eru umfram fjárlög en við verðum að treysta því að fá greitt fyrir þá.
Helstu viðburðir í skóladagatali vorannar 2012 eru þessir: Töflubreytingar fóru fram 4. og 5. janúar og kennsla hófst í dagskólanum föstudaginn 6. janúar. Innritun í fjarnám er frá 7. til 14. janúar og kennsla í fjarnámi hefst 19. janúar. Nemendur geta hætt í áföngum og sloppið við úrsagnarskráningu í INNU fram til 16. janúar. Árdagar eru frá 29. febrúar til 2. mars, páskafrí frá 2. til 10. apríl og kennslu lýkur svo föstudaginn 27. apríl. Vorpróf hefjast síðan mánudaginn 30. apríl og þeim lýkur mánudaginn 14. maí. Sýning prófúrlausna, staðfesting vals og endurtektarpróf verða miðvikudaginn 16. maí og brautskráning er laugardaginn 19. maí.
Fjárhagsstaða skólans er mjög óviss. Á sínum tíma fengum við mikinn niðurskurð fjárveitinga, meiri en nokkur annar framhaldsskóli. Enn er óljóst hvernig staðan verður um áramótin þar sem uppgjör er ófrágengið. Ársnemar 2011 verða líklega um 1120 en í fjárlögum var aðeins gert ráð fyrir 1015 ársnemum. Rúmlega 100 ársnemar eru því umfram kvótann. Ef við fáum þá að fullu bætta verður skólinn hallalaus í byrjun árs 2012. Ég á ekki von á öðru en að svo verði. Við sendum ráðuneytinu rekstraráætlun fyrir árið 2012 með halla upp á tæpar 89 milljónir króna. Greinargerð fylgdi áætluninni þar sem fram kemur að ársnemar skólans verða um 1150 en ekki 1015 eins og kemur fram í fjárlögum ársins 2012. Ef við fáum bætur fyrir 135 ársnema umfram fjárlagatöluna verður rekstur skólans hallalaus í lok árs 2012 og líklega með nokkrum afgangi. Það er vissulega slæmt að ársnematala skólans var ekki hækkuð í fjárlögum ársins 2012, sérstaklega þar sem öllum er ljóst að ársnemar 2012 verða mun fleiri en 1015. Ráðuneytið ber því við að þessir umframnemendur komi til vegna tímabundins átaksverkefnis og því sé nauðsynlegt að fjármunir sem eiga að mæta kostnaði vegna átaksins séu á sérstökum lið í fjárlögum.
Nýbyggingu skólans er nú lokið og þá tekur við næsta stóra verkefnið sem er skólalóðin. Ég átti fund með ráðherra og ráðuneytisstjóra í mennta- og menningarmálaráðuneytinu þann 29. desember þar sem ég lagði þunga áherslu á að sem fyrst verði hafist handa við lóðarframkvæmdir. Ráðherra tók vel í það mál svo að ég vonast til að framkvæmdir við skólalóðina geti hafist sem fyrst.
Kennslukönnun fór fram á haustönn að vanda. Því miður var þátttaka alls ekki nógu góð þar sem aðeins tæp 47% skráðra nemenda svöruðu kennslumatinu. Við ætlum að breyta framkvæmd þessara kennslukannana á vorönn og mun Helmut stýra þeim breytingum.
Þrátt fyrir að Alþingi hafi frestað gildistöku framhaldsskólalaganna hvað varðar nýjar námsbrautir munum við halda áfram að ræða námskrármál og breytta kennsluhætti á vorönn. Kennslustjórar munu stýra þeirri vinnu. Við gerum ráð fyrir að fundartími eftir kennslu á miðvikudögum nýtist til þess. Stefnt er að því að halda skólafund í janúar þar sem almennur hluti skólanámskrár verður tekinn til afgreiðslu.
Ég átti fund með ráðherra þann 29. desember síðastliðinn. Í samtali mínu við Katrínu Jakobsdóttur ráðherra og Ástu Magnúsdóttur ráðuneytisstjóra fylgdi ég eftir ýmsum brýnum hagsmunamálum skólans. Aðalerindi mitt var þó að óska lausnar sem skólameistari frá og með 1. ágúst 2012. Ég hef nú stýrt FÁ í sjö ár og á þeim tíma hefur aðstaða nemenda tekið stakkaskiptum. Skólinn fékk afhent nýtt húsnæði haustið 2011 og rúmast nú nær allt skólastarfið hér í aðalbyggingunni. Jafnframt hefur tekist að byggja upp aðstöðu og búnað sem er með því besta sem gerist í íslenskum framhaldsskólum. Skólinn fékk mjög góða umsögn í úttekt mennta- og menningarmálaráðuneytisins sem birt var í mars 2011. Almennur hluti skólanámsskrár er nú í umsagnarferli og verður tekinn fyrir á skólafundi nú í janúar. Þegar ég lít yfir þessi sjö ár er ég sáttur við að ljúka starfi á þessum tímapunkti.
Ég byrjaði að kenna við framhaldsskóla haustið 1969 í framhaldsdeildum Lindargötuskóla sem eru ein af stoðum Fjölbrautaskólans við Ármúla. Þar kenndi ég með Rannveigu, Vilborgu, Elísabetu og Einari Hjaltested sem öll voru kennarar við FÁ um árabil en eru nú öll hætt störfum. Haustið 2012 verða komin 43 ár síðan ég hóf störf í skóla og því kominn tími til að gera eitthvað annað. Nýr skólameistari tekur við góðu búi en fær það vandasama verkefni að móta nýjar námsbrautir og nýja kennsluhætti í okkar ágæta skóla. Ég tel það lífspursmál að vel takist til við þá vinnu svo að nemendur í Fjölbrautaskólanum við Ármúla fái verkefni við hæfi. Því miður virðist vera að stór hópur nemenda finni sig ekki í skólanum sem marka má af miklu brottfalli.
Ágætu nemendur og starfsmenn Fjölbrautaskólans við Ármúla. Skólinn hefur þurft að glíma við mikinn niðurskurð fjárveitinga undanfarin þrjú ár sem ávallt er erfitt. Margir einstaklingar og fjölskyldur hafa einnig átt í miklum fjárhagserfiðleikum. Ég vona svo sannarlega að árið 2012 marki upphaf að betri tíð. Ráðamenn þjóðarinnar segja að það versta sé að baki og nú hefjist uppbygging. Með þá von í huga skulum við hefja starfið á nýju ári.
Gísli