Ný tölvuleikjalína í FÁ

Tölvuleikir eru ein stærsta afþreyingar- og skapandi grein heims og áhrif þeirra ná langt út fyrir skjáinn. Þeir tengjast tækni, listum, hönnun, sagnagerð, samskiptum og nýsköpun. Í haust býður Fjölbrautaskólinn við Ármúla upp á nýja Tölvuleikjalínu innan Nýsköpunar- og listabrautar, þar sem nemendur fá tækifæri til að skoða tölvuleiki í víðari samhengi.

Skólaheimsókn til Ítalíu

Þann 25. maí hélt 60 manna hópur kennara og starfsmanna í FÁ til Rómar í Ítalíu. Tilgangur ferðarinnar var að kynna sér starfið í tveim skólum í borginni Ferentino og í Róm. Tveir ólíkir en flottir skólar sem gaman var að heimsækja.

Útskrift vor 2026

Það var bæði létt yfir og hátíðlegt þegar Fjölbrautaskólinn við Ármúla útskrifaði nemendur sína í dag. Fjölskyldur, vinir og starfsfólk komu saman til að fagna með útskriftarnemum sem nú hverfa út í ný framtíðarverkefni.

Skráning hafin í sumarfjarnám

Innritun í fjarnám á sumarönn við FÁ er hafin og stendur yfir til 5. júní. Önnin hefst svo 9. júní Alls eru hátt í 90 áfangar í boði á sumarönn 2026 og hvetjum við alla til að kynna sér námsframboðið hér. Hægt er að skrá sig í fjarnámið hér.

This War of Mine og heimsókn frá pólska sendiráðinu

Hvernig geta tölvuleikir hjálpað okkur við að setja okkur í spor annara, aukið samkennd og skilning á aðstæðum sem við þekkjum ekki? Þessum spurningum veltu nemendur í Yndisspilun fyrir sér eftir að hafa spilað leikinn This War of Mine.

Sérnámsbraut á ferð og flugi

Nemendur á sérnámsbraut hafa verið duglegir að fara í ýmsar vettvangsferðir undanfarið. Um daginn kíktu þau í Hörpu og fengu góða leiðsögn um húsið. Þau fengu að sjá alla salina og kíkja aðeins baksviðs og einnig náðu þau að sjá sinfoníuhljómsveitina spila. Svo kíktu þau í Ásmundarsafn sem er alltaf ævintýri. Hér má sjá myndir frá heimsóknunum:

Skuggakosningar í FÁ

Í síðustu viku fóru fram Skuggakosningar í framhaldsskólum landsins og að sjálfsögðu tókum við í FÁ þátt. Skuggakosningar eru kosningar þar sem framhaldsskólanemar kjósa sína fulltrúa í sveitarstjórnarkosningum og munu endurspegla vilja nemenda um allt land. Frambjóðendur 11 stjórnmálaflokka sem bjóða fram í Reykjavík komu í heimsókn í skólann á þriðjudaginn 28. apríl, kynntu málefni sín og sátu fyrir svörum. Nemendur í heimspeki og félagsfræði kenninga sáu um skipulag og stjórnun fundarins og fór hann mjög vel fram. Nemendur komu með frábærar spurningar og voru vel undirbúin. Skuggakosningarnar sjálfar fóru svo fram á Steypunni, miðvikudaginn 29. apríl, en nemendur sem voru fæddir 15. maí 2024 og síðar voru á kjörskrá. Kosningarþátttaka var 19%. Vonandi verður kosningaþátttaka ungs fólks heldur meiri í sveitarstjórnarkosningunum sem fara fram 16. maí og óskum við nýjum kjósendum til hamingju með kosningaréttinn.

Umhverfisfréttafólk

Á ári hverju býðst ungu fólki í grunn- og framhaldsskólum að taka þátt í samkeppni á vegum Landverndar. Samkeppnin ber heitið Umhverfisfréttafólk og snýst um að koma umhverfismáli að eigin vali á framfæri við almenning með fjölbreyttum leiðum. Nemendur í ljósmyndavali í FÁ - LJÓS2SM05 undir stjórn Jeannette Castioni, tóku myndir og unnu þær og sendu í keppnina. Alls voru tvö verkefni frá FÁ en 15 framhaldsskólar tóku þátt í þessu verkefni Verðlaunaathöfn keppninnar fór fram á mánudaginn 27. apríl í húsakynnum Landverndar. Loki Úlfur Skarphéðinsson nemandi í FÁ fékk viðurkenningu fyrir listsköpun fyrir ljósmyndina sína “Beings of the Dawn”. Ingigerður Anna Bergvinsdóttir var með 2 ljósmyndir í keppninni og sem kallast „Bernska úr plasti“. Mjög áhugaverðar og frumlegar myndir. Hér má sjá fleiri úrslit í keppninni: https://graenfaninn.is/2026/04/30/sigurvegarar-i-umhverfisfrettafolki-2026/ Innilegar hamingjuóskir Loki Úlfur

Umræða um framtíð kvikmynda

Á föstudaginn síðastliðinn, þann 24.apríl, fór Kvikmyndaráð FÁ í heimsókn í Háskólabíó og tók þátt í umræðuviðburði ásamt fulltrúum kvikmyndafræðideilda HÍ og LHÍ, þeim Birni Þór Vilhjálmssyni og Guðrúnu Elsu Bragadóttur. Umræðuviðburðurinn markaði endapunkt á reglulegum samræðufundum sem kvikmyndaráð hefur haldið á vorönninni. Samhliða þessu unnu nemendur skriflegt verkefni um stöðu og framtíð kvikmynda í ljós nýrrar tækni. Helstu niðurstöður nemenda verða teknar saman í skýrslu og kynntar fulltrúum Kvikmyndamiðstöðvar.

Vel heppnuð Tyrklandsferð

Fimm manna hópur frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla heimsótti borgina Eskişehir í Tyrkland í seinustu viku til að fræðast um möguleika gervigreindar í námi og kennslu. Ferðin var liður í Erasmus-verkefninu We Shape the Future: Integrating AI, AR and VR in Education þar sem möguleikar sýndarveruleika, gagnaukins veruleika og gervigreindar eru skoðaðir með áherslu á STEM-greinar. Í Tyrklandi unnu nemendur frá Íslandi, Grikklandi og Tyrklandi saman í verkefnum þar sem gervigreind var notuð í eðlisfræði og efnafræði. Þátttakendur verkefnisins fengu einnig fræðslu um almenna notkun gervigreindar. Farið var í dagsferð þar sem borgirnar Bursa og Iznik voru skoðaðar og bragðað á tyrkneskum mat, farið á útimarkaði, heimsótt moskur, nýlistasafn, fornminjasöfn og skoðað grafhýsi Osman Gazi, stofnanda Tyrkjaveldis.