Fréttir

Danskir sjúkraliðanemar í FÁ

5.5.2017

Í gær komu tveir danskir sjúkraliðanemar í heimsókn í skólann, þær Manal og Hidi. Þær koma frá Sjúkraliðaskólanum (SOPU) í Kaupmannahöfn og verða fimm vikur í starfsþjálfun á Landa-koti áður en þær verða brautskráðar í júní sem sjúkraliðar. Starfsþjálfunin hér á landi er hluti af Erasmus verkefni sem FÁ og danski skólinn taka þátt í.  Sautjánda apríl sl. fóru  tveir íslenskir sjúkraliðanemar í fimm vikna starfsþjálfun til Kaupmannahafnar.  Dönsku nemarnir skoðuðu Heilbrigðisskólann og voru mjög ánægðir með aðstöðuna þar og svo var boðið í mat í mötuneytinu.