Fréttir

Díll á díl ofan

6.2.2017

Sumir eru svo óhittnir að þeir hitta ekki kú þótt þeir haldi í halann á henni. Þannig virðist líka um marga sem þurfa að losa sig við tuggugúmmí, þeim er fyrirmunað að hitta í ruslastampinn þótt færið sé innan við hálfur metri. Það er ekki öllum gefið að komast í landsliðið í körfubolta en minna má þó gagn gera. Menn verða að æfa sig betur og betur uns þeir hitta í dallinn. Þessi dílar á gangstéttinni eru blettur á ásýnd skólans, grænfánaskólans okkar.