Fréttir

Heilsueflandi skóli

20.1.2017

Vegan-matur, hugleiðsla á þriðjudögum og fimmtudögum og í dag, föstudaginn 20. er jóga og heilsubót. Það má með sanni segja að FÁ ætli sér að standa undir því að vera heilsueflandi. Ef vel tekst til með líkamlega hreysti og andlegan heilagleika er aldrei að vita nema starfsfólk og nemendur fari að ganga um í loftinu eins og heilagra manna er siður. Þarf ekki að tíunda hvað spara má í skófatnaði með því móti. Eitt er víst að heilbrigt líferni léttir lundina og þá er allt svo miklu auðveldara, og gleymum ekki að brosa og hlæja sem mest, það lengir lífið