Fréttir

Leiksigur!

17.3.2017

Það var sannkallaður leiksigur hjá Leikfélagi FÁ í kvöld. Söngleikurinn Ótemjan er fjörugt og skemmtilegt sjónarspil, farsi sem byggir á kvikmyndinni 10 Things I Hate about You. Það má með sanni segja að leikhópurinn hafi farið fram úr öllum vonum og það eina slæma sem hægt er að segja um sýninguna í kvöld er að það verður erfitt að toppa þessa sýningu. Leikgleðin, hraðinn í framvindunni, fyndinn textinn og frammistaða leikarana er smitandi og það var mikið hlegið og mikið klappað og það ekki að ósekju. Leikfélagið á allt hrós skilið og það verður að hvetja alla að koma og sjá þessa frábæru sýningu. Hér er ómenguð og tær kátínan á ferð. Smelltu hér til að sjá myndir af sýningunni.

Næsta sýning er á laugardaginn klukkan átta, svo er sýnt á sunnudaginn klukkan tvö og átta. Mætið! Njótið! Hlæið!