Þjónusta

Prentun - Skönnun

Prentun

Nemendur geta prentað verk sín á prentara sem eru staðsettir í norður - og austurálmu skólans. Þessir prentarar sameina prentun, ljósritun og skönnun í svart/hvítu og lit. Með þessu vill skólinn tryggja góða og örugga þjónustu.

Kostnaður við ljósritun, prentun og skönnun er kr. 10 fyrir hvert blað (A4, svart/hvítt) og kr. 50 fyrir litprentun og litljósritun (A4).

Hver nemandi er með reikning í staðarneti skólans. Prentverk safnast í prentbiðröð og prentast einungis þegar kennitala er skráð í gegnum kortalesara. Um leið dregst þessi prentun/ljósritun/skönnun frá reikningi viðkomandi nemanda.

  • Með stundatöflu fá allir nýnemar notendareikning með 40 bls. (A4, svart/hvítt) innistæðu.
  • Notendareikningurinn gildir út skólanámið.

Hægt er að greiða inn á prentkortið á bókasafni á skólatíma og í Þjónustuveri.
Lágmarksgreiðsla er kr. 500.

Öll þjónusta vegna prentunar er í þjónustuveri, sem er staðsett 1. hæð við hliðina á nemendaráðsskrifstofunni

Leiðbeiningar:

Prentun - litprentun - ljósritun - litljósritun

  1. Sláið inn kennitölu á kortalesara.
  2. Til að prenta veljið Print á kortalesara,
  3. Til að ljósrita veljið Copy á kortalesara.

Kveikið á Power hnapp ef slökkt er á vélinni.

Að ljósritun lokinni er nauðsynlegt að velja END á kortalesara.

Litprentun

Ef prenta á í lit nægir að senda skjalið í prentun á FA-Litur.

Prentarinn skynjar hvaða síður eru í lit og hverjar eru í svart/hvítu og reiknar samkvæmt taxta.

Litljósritun

Þegar ljósritað er í lit þarf að velja Full Color hnapp á hnappaborðinu.

Skönnun

  1. Sláið inn kennitölu á kortalesara.
  2. Til að skanna inn veljið Copy á kortalesara.
  3. Veljið Scanner hnapp á stjórnborði.
  4. Veljið Scan to Pc valkost á stjórnborði.
  5. Veljið Save at User Pc valkost á stjórnborði.
  6. Veljið Skanni-Vestur eða Skanni-Austur valkost eftir því sem við á.
  7. Að lokum er valið Start til að hefja skönnun.

Að skönnun lokinn er nauðsynlegt að velja END á kortalesara.

Til að sækja skjalið inn á tölvu er farið á T: \ drif ef það er mappað á tölvuna eða farið í Start - Run og eftirfarandi lína skrifuð inn í gluggann sem opnast: \\LOGI.fa.is\temp

Að lokum er skjalið sótt á Skanni-Vestur eða Skanni-Austur eftir því sem við á.

Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica