Tölvuver
Tölvuverið er opið:
frá kl. 8:00 til 16:30 mánudaga - fimmtudaga
og frá kl. 8:00 til 15 á föstudögum
- Láttu ekki undir nokkrum kringumstæðum aðra fá notandanafn og lykilorð þitt. Gleymdu því ekki að þú ert ábyrgur fyrir netfanginu þínu og öllu sem unnið er á þínu netfangi.
- Þeir nemendur sem týna eða gleyma lykilorðinu sínu þurfa að greiða kr. 100 til að fá úthlutað lykilorðinu að nýju.
- Nemendur hafa aðgang að Innu og geta flett upp stundatöflu sinni. Nánari upplýsingar má finna undir Inna fyrir nemendur.
- Heimasvæði þitt á móðurtölvunni er H-drif. Enginn hefur aðgang að svæðinu þínu nema þú og umsjónarmaður tölvunetsins.
- Fjölnotavélar sameina prentun, ljósritun og skönnun. Nánari upplýsingar um prentun er að finna á heimasíðu skólans undir Þjónusta - Þjónustu- og tölvuver - Prentun - skönnun.
- Auk aðgangs að staðarneti hefur þú aðgang að Internetinu. Allir mega "gramsa" að vild en innan velsæmismarka.
- Allir nemendur hafa aðgang að vefpósti á Internetinu. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu skólans undir Þjónusta og Vefpóstur.
- Munið að ganga ávallt vel um tölvuverið. Mat og drykki má ekki hafa meðferðis. Farið út af tölvunum að vinnu lokinni.
- Á stofutöflum kemur fram hvenær verið er að kenna í stofunum. Þú hefur aðgang að tölvustofum þegar ekki er verið að kenna í stofunum.
- Ekki er leyfilegt að setja tölvuleiki inn á tölvur skólans. Tölvuleikir eru aðeins leyfðir eftir lok skóladags.
- Nemendur sem eru með fartölvur geta tengst þráðlaust við staðarnet skólans og Internet. Upplýsingar eru á heimasíðu skólans undir Þjónusta og Tenging við þrálausa netið.
- Brot á umgengnisreglum getur leitt til þess að aðgangur að staðarneti skólans verði tímabundið eða alveg lokað. Litið er á tilraun til að brjótast inn á netkerfi skólans eins og hvert annað innbrot og getur leitt til brottvísunar úr skóla.
Velkomin(n) í tölvuverið
