Stillingar vefskoðara í WebCT CE6

Þessi útgáfa af WebCT forritinu krefst þess að tölvur séu með nýlega útgáfu af vefskoðara (Internet Explorer, Netscape, Mozilla, Firefox). Einnig þarf Java að vera til staðar til að hægt sé að nota öll verkfærin og leyfa þarf notkun svokallaðra sprettiglugga (Pop-up). Mælt er með því að í fyrsta skipti sem farið er í nýja kennsluumhverfið að velja valkostinn „Run a Browser Check“ sem sjá má hér að ofan til að athuga hvort vefskoðarinn er rétt stilltur. Forritið kannar þá hvort nauðsynlegur hugbúnaður sé fyrir hendi og bendir á leiðir til að uppfæra ef þörf krefur.

Forritið kannar hvort það styður þá útgáfu vefskoðara sem er uppsett á tölvunni, hvort vefskoðarinn er rétt stilltur og hvort rétt útgáfa af Java er uppsett. Grænt hak sýnir að allar stillingar eru eins og þær eiga að vera. Rautt hak þýðir að stilla þarf vefskoðarann eða uppfæra.
Ef allt reynist vera í lagi er ekki nauðsynlegt að fara lengra og má byrja að nota WebCT.
Ef stillingar eru ekki í lagi finnið þið hér að neðan leiðbeiningar fyrir stillingar á Internet Explorer.
Kökur (Cookies)
WebCT CE6 notar kökur (cookies) og er nauðsynlegt að leyfa þær.
Í Internet Explorer eru kökur leyfðar með því að velja valkostina Tools og Internet Options.
Þar er svo valið Privacy.
Næst er valkosturinn Advanced valinn og kökurnar leyfðar eins og er sýnt hér að neðan.

Javascript
Til að geta notað Java þarf Javascript að vera leyfð.
Í Internet Explorer er Javascript leyfð með því að velja valkostina Tools og Internet Options.
Næst er valið Security og Custum Level.
Stilla þarf Active Scripting og Scripting of Java Applets í Enable.

Pop-up gluggar
WebCT CE6 notar Pop-up glugga t.d. í umræðum (discussion) og tilkynningum (announcement).
Því þarf að leyfa Pop-up glugga fyrir viðkomandi vefsíður eða alveg.
Í Internet Explorer eru Pop-up gluggar stilltir með því að velja valkostina Tools og Pop-up Blocker.
Næst má velja Turn off Pop-up Blocker til að leyfa alla Pop-up glugga (ekki er mælt með því) eða Pop-up Blocker Settings.
Setja þarf inn slóðina að heimasíðu WebCT (http://webct.fa.is) og velja Add og síðan Close.
Til eru fleiri forrit sem hindra sprettiglugga og þarf að stilla þau til að leyfa Pop-up.
M.a. eru mörg vírusvarnarforrit með varnir gegn sprettigluggum.
Hér eru nokkur forrit sem þarf að stilla rétt:
Að lokum gæti verið gott að stilla Cache og Automatic logon.
Cache
Í Internet Explorer þarf að velja valkostina Tools og Internet Options.
Næst skal velja undir General og Temporary Internet Files valkostinn Settings og merkja við Automatically.
Automatic logon
Í Internet Explorer þarf að velja valkostina Tools og Internet Options.
Næst þarf að velja Security og Custom Level og stilla User Authentication.
Ekki má vera merkt við Anonymous logon.