Áfangi
LHF 103
- Áfangaheiti: LYHR3MÖ05
- Undanfari: Æskilegir undanfarar: LÍOL2IL05 og SJÚK2GH05
Markmið
Að nemandi:
- þekki áhrif helstu meltingarfæralyfja, verkjalyfja og húðlyfja
- kunni ofangreind lyf með nafni, sérheiti og samheiti
- skilji verkun lyfja úr ofangreindum flokkum
- geti skýrt verkun lyfja fyrir sjúklingum
- kunni að leita sér upplýsinga um lyf
- kunni skil á helstu aukaverkunum ofangreindra lyfja
- viti um helstu milliverkanir lyfja
- viti hvernig á að taka lyf og í hvaða skammtastærðum.
Efnisatriði
Munn-og tannlyf, sýrubindandi lyf, sýruhemjandi lyf, sárasjúkdómalyf, bakflæðislyf, uppþembulyf, magatæmandi lyf, hægðalyf, lyf gegn niðurgangi, gyllinæðarlyf, væg verkjalyf, gigtarlyf, sterk verkjalyf, kláðastillandi lyf, psoriasislyf, barksterar, lyf við bólum, lyfjasápur, mýkjandi og húðverndandi lyf.
Námsfyrirkomulag
Fyrirlestrar, myndbönd, verkefnavinna.
Kennslugögn
Glærur frá kennara í Moodle. Ýmsar tímaritsgreinar.
Sérlyfjaskráin, rafræn útgáfa: www.serlyfjaskra.is
Námsmat
Lokapróf, hlutapróf, verkefni.