Áfangi
LHF 303
- Áfangaheiti: LYHR3TH05
- Undanfari: LÍOL2IL05 OG SJÚK2GH05
Markmið
Að nemandi:
þekki áhrif helstu verkjalyfja, geðlyfja, róandi lyfja og svefnlyfja, geðklofalyfja, og lyfja við flogaveiki
þekki verkun helstu lyfja við Alzheimer heilkennum, Parkinson, MS sjúkdómi og gigt
kunni ofangreind lyf með nafni, sérheiti og samheiti
skilji verkun lyfja úr ofangreindum flokkum
geti skýrt verkun lyfja fyrir sjúklingum
kunni að leita sér upplýsinga um lyf
kunni skil á helstu aukaverkunum ofangreindra lyfja
viti um helstu milliverkanir lyfja
viti hvernig á að taka lyf og í hvaða skammtastærðum.
Efnisatriði
Svæfingalyf, verkjalyf, flogaveikilyf, mígrenilyf, Parkinsonlyf, geðlyf, róandi lyf, svefnlyf, geðdeyfðarlyf, örvandi lyf, bólgueyðandi lyf, gigtarlyf, vöðvaslakandi lyf, þvagsýrugigtarlyf, hitalækkandi lyf, ópíóíðar, staðdeyfilyf.
Námsfyrirkomulag
Fyrirlestrar, myndbönd, verkefnavinna.
Kennslugögn
Glærur frá kennara og ýmsar tímaritsgreinar (í Moodle). Eins er stuðst mikið við sérlyfjaskrá: www.serlyfjaskra.is
Námsmat
Skilaverkefni (4) 20%
Hlutapróf (2) 30%
Lokapróf 50% (lágmarkseinkunn 5,0)