Áfangi

Sjúkdómafræði 1

  • Áfangaheiti: SJÚK2MS05
  • Undanfari: LÍOL2SS05 og HBFR1HH05

Markmið

Að nemandi
geti gert grein fyrir nokkrum grundvallarhugtökum í meinafræði og tengsl þeirra við sjúkdóma í mönnum.
geti lýst hvernig hægt er að minnka líkur á frumulöskun af völdum umhverfisþátta.
þekki hlutverk helstu samvægisferla í heilbrigði mannslíkamans.
læri um þróun og sameiginleg einkenni helstu krabbameina og tengsl þeirra við umhverfis-og erfðaþætti.
geti gert grein fyrir meingerð, einkennum og orsökum algengustu sjúkdóma í þekjukerfi, stoðkerfi og taugakerfi.

Efnisatriði

Í áfanganum er fjallað um grundvallarhugtök í meinafræði og þróun sjúklegra breytinga í líkamsvefjum. Það er fjallað nokkuð almennt um sýkingar, æxlisvöxt og umhverfislöskun og nokkuð ítarlega um sjúkdóma í stoðkerfi, taugakerfi og húð.

Kennslugögn

Hlekkur á kennslubók:The Nature Of Disease: Pathology For The Health Professions
Stuðningsefni: Tortora. Principles of Human Anatomy. Harper Collins, NY

Námsmat

70% lokapróf
30% verkefni og próf á önn