Áfangi
Sálfræði grunnáfangi
- Áfangaheiti: SÁLF2AA05
Markmið
Að nemendur:
• þekki helstu stefnur sálfræðinnar og fái innsýn í fjölbreytni hennar
• þekki helstu starfssvið sálfræðinga og viti hvernig sálfræði nýtist í daglegu lífi og í meðferð
• viti hvað viðbragðsskilyrðing er og þekki tengsl hennar við daglegt líf, svo sem óttaviðbrögð, auglýsingar, meðferðarúrræði o.s.frv.
• viti hvað virk skilyrðing er og þekki tengsl hennar við uppeldi, hegðunar -vandamál, meðferð, nám o.s.frv.
• þekki helstu tegundir æðra náms eins og t.d. sýndarnám og innsæisnám
• þekki hugrænar kenningar um minni og fái innsýn í minnistækniaðferðir og námstækni
• þekki helstu rannsóknaraðferðir sálfræðinnar og þjálfist í vísindalegri hugsun og vinnubrögðum með því að framkvæma einfalda tilraun og túlka niðurstöður
Efnisatriði
Stefnur sálfræðinnar, undirgreinar, viðbragðsskilyrðing, virk skilyrðing, hugrænar kenningar um nám og minni og rannsóknaraðferðir.
Námsfyrirkomulag
Fyrirlestrar, fræðsluefni, tímaverkefni og rannsóknarvinna.
Kennslugögn
Inngangur að sálfræði eftir Kristján Guðmundsson og Lilju Ósk Úlfarsdóttir. JPV útgáfa, Reykjavík 2008
Námsmat
Kaflapróf (alls þrjú) 67%
Verkefnamappa 10%
Rannsóknarvinna 13%
Mæting og virkni 10%