Áfangi

Lífeðlissálfræði

Markmið

Að nemendur:

  • öðlist grundvallarþekkingu á taugakerfi mannsins, einkum heilastarfsemi
  • átti sig á tengslum heilastarfsemi við hegðun, hugsun og tilfinningar
  • fái innsýn í helstu aðferðir til að rannsaka heilastarfsemi og kynnist nýlegri þekkingu á þessu sviði
  • þekki áhrif geðlyfja á geðsjúkdóma
  • þekki áhrif algengustu vímuefna m.a á lífefnafræði heilans og skynjun
  • þekki lífeðlislega gerð augans og öðlist skilning á sjónskynjuninni
  • þekki lífeðlislega gerð eyrans og öðlist skilning á heyrnarskynjuninni
  • fái innsýn í helstu hugmyndir um hlutverk svefns og drauma. M.a nýlegar rannsóknir á eðli svefnsins

Námsfyrirkomulag

Kennsluáætlun

Kennslugögn

Hugur, heili og hátterni. Aldís Guðmundsdóttir og Jörgen Pind. Mál og menning. (2003)

Námsmat

Kaflapróf, verkefnaskil, vinnumappa, virkni og mæting.