Áfangi
Verkþjálfun 2 Nuddbraut
- Áfangaheiti: MAVE3SÞ03
Markmið
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa
öðlast þekkingu og skilning á:
-
þeim verkefnum sem bíða heilsunuddara í starfi á
nuddstofum.
-
ýmsum vandamálum sem skjólstæðingar koma með til úrlausnar
hjá heilsunuddara.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
-
bregðast
markvisst við viðfangsefnum sem skjólstæðingar koma með til heilsunuddara.
-
eiga
í góðum faglegum samskiptum við skjóstæðinga.
-
útskýra
starfskenningu sína.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu
þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
-
vinna
margbreytileg störf á nuddstofum.
-
skapa
sér sinn eigin starfsvettvang í heilsunuddi.
-
ástunda
dyggðir í starfi sínu, s.s. stundvísi, sanngirni, heiðarleika og
áreiðanleika.
-
þróa
áfram starfskenningu sína.
Námsfyrirkomulag
Nemendur mæta vikulega í skólann og ræða í hópi viðfangsefni liðinnar viku, auk þess að samþætta og rifja upp það sem þegar er lært.
Námsmat
Mæting og spurningar í ferilbók.