Áfangi
Tölvuleikir kynning
- Áfangaheiti: TÖLE2SE05
Markmið
Meginmarkmið er að nemandi:
- þekki sögu og þróun tölvuleikja
- þekki uppbyggingu tölvuleikja
- viti hvernig tölvuleikir eru búnir til og þekki íslenska leikjaiðnaðinn
- geti tengt tölvuleiki við ólík fræðisvið skilji menningarleg og félagsleg áhrif tölvuleikja
Þekkingarviðmið er að nemandi hafi almenna þekkingu og skilning á:
- sögulegum bakgrunni tölvuleikja og tengi hana við tækniþróun
- uppbyggingu leikja, leikjareglum, leikjaþróun, leikjahönnun, leikjavæðingu, sýndarheimum, sýndarpersónum og töfrahring tölvuleikjaspilarans leikjasamfélögum
- áhrif tölvuleikja á spilara, netfíkn og staðalímyndir
- möguleikum og takmörkunum tölvuleikja
Námsfyrirkomulag
Notast verður við fjölbreyttar kennsluaðferðir; fyrirlestra, verkefnavinnu, einstaklingsverkefni, hópverkefni og almennar umræður.
Kennslugögn
Kennslugögn frá kennara – dreift í tíma og/eða á Moodle.
Námsmat
Símatsáfangi sem byggir á verkefnavinnu og virkni nemenda í umræðum í tíma og á Moodle.
Verkefni gilda 70%
Mæting og ástundun gildir 30%