Áfangi

Næringarfræði

Efnisatriði

Í áfanganum er farið í næringarefnin, hlutverk þeirra, dagsþörf og skortseinkenni. Fjallað er um manneldismarkmiðin, ráðlagða dagskammta og fæðuhringinn og í tengslum við það skoðaðar kannanir á mataræði Íslendinga. Einnig eru teknar fyrir merkingar matvæla og aukefni í matvælum auk matarsýkinga og matareitrana. Farið verður í næringu sérstakra hópa t.d. ófrískra kvenna og aldraðra. Kenndir eru útreikningar á orku- og næringarinnihaldi fæðis. Í kjölfarið vinna nemendur verkefni um neyslukönnun. Einnig verður farið í offitu og megrunarfæði og aðeins tæpt á fæðubótarefnum. Í lokin verður fjallað um sérfæði á sjúkrastofnunum t.d. sykursjúkra og hjartasjúkra.

Kennslugögn

Lesefni á Moodle dugir til námsins og því ekki nauðsynlegt að kaupa kennslubók.
Ef nemandi vill nota kennslubók til stuðnings er mælt með eftirtöldum bókunum:

Lífsþróttur eftir Ólaf Gunnar Sæmundsson
Næring og hollusta eftir Elísabetu Magnúsdóttur

Námsmat

Áfanginn er metinn útfrá verkefnum og lokaprófi.