Áfangi

Hornaföll og vigrar

Markmið

Nemandi skal hafa öðlast almenna þekkingu á - talningafræði, (umröðunum, samantektum og margföldunarreglunni), hornafræði þríhyrninga, hornafallajöfnum og ójöfnum, einföldum gröfum hornafalla, vigur og vigurreikningi.   Nemandi skal hafa öðlast leikni í   - að vinna með umraðanir og samantektir innan talningafræðinnar og að geta metið hvenær röð skiptir máli.   - að leysa hornafallajöfnur og léttari ójöfur - vinna með vigra í tvívíðu rúmi og nota viðeigandi reikinreglur   Nemandi skal auk þess sýna hæfni í að - ákvarða hvaða aðferð skal beita á hin ýmsu viðfangsefni áfangans - setja fram lausnir á skipulagðan máta   - tjá sig við kennara og samnemendur um verkefni og lausnir þeirra.

Efnisatriði

Talningafræði, hornafræði, gröf hornafalla og vigrareikningur.

Kennslugögn

Stærðfræði 3A.Vigrar, hornaföll, þríhyrningar, hringir, ákveður, stikun. IÐNÚ 2023. Höfundar: Gísli Bachman og Helga Björnsdóttir.
Aukaefni frá kennara.
Kennsluumhverfið Inna er notað í áfanganum og fær nemandi aðgang eftir að kennsla hefst. Þar er að finna allt ítarefni.

Námsmat

Annareinkunn 40%, lokapróf 60%