Áfangi
LÍF 203
- Áfangaheiti: LÍFF3EF05
- Undanfari: LÍFF2LE05
- Efnisgjald: 0
Efnisatriði
Í áfanganum er fjallað um sögu erfðafræðinnar og stöðu hennar innan náttúruvísinda. Fjallað er um lykilatriði erfðafræðinnar, frumuskiptingu, litninga og gen, myndun kynfrumna og frjóvgun. Einnig um erfðamynstur lífvera og hvað ræður kynferði þeirra. Litningar eru teknir nánar til umfjöllunar frá NÁT 103 og skoðað hvernig þeir stjórna myndun próteina í lífverum og atburðarás prótínmyndunar rakin. Breytingum á erfðaefni, stökkbreytingum og litningabreytingum er lýst og fjallað um helstu aðferðir sem beitt er í erfðarannsóknum og erfðatækni. Fjallað er um tíðni og jafnvægi gena í ólíkum stofnum lífvera.
Kennslugögn
Efni frá kennara.
Námsmat
Lokapróf og ýmis verkefni sem unnin verða á önninni.
Tengd vefslóð
http://www.fa.is/deildir/Liffraedi/index.htm