Áfangi
Lyfjalög
- Áfangaheiti: LYLÖ1LR05
- Efnisgjald: 0
Markmið
Að nemandi: hafi innsýn í þau lög sem lyfjatæknar vinna eftir; kunni að leita upplýsinga í lögum og reglugerðum; geti starfað í anda lyfjalaga; geti veitt upplýsingar um efni sem tengjast lyfjalögum; þekki muninn á löglegum og röngum lyfseðlum; viti í hvaða magni lyfjum má ávísa á lyfseðil; þekki hvaða lyf eru eftiritunarskyld og hvernig þau eru afgreidd; þekki hvaða lyf eru ávanabindandi og hvaða reglur gilda um afgreiðslu; þeirra viti hvaða reglur gilda um lyfsöluleyfi og lyfjabúðir; þekki lög og reglugerðir sem fjalla um heilbrigðisstéttir; þekki lög og reglur um almannatryggingar; viti um hvað eiturefnalöggjöfin snýst; viti hvaða skilyrði lyfjabúðir, lyfjaheildverslanir, lyfjaframleiðslufyrirtæki og sjúkrahúsapótek þurfa að uppfylla til að geta starfað samkvæmt lögum; þekki reglur sem gilda um símalyfseðla og undanþágulyfseðla; viti hvaða lyfjum má ávísa í gegnum síma og í hvaða magni; geti yfirfarið lyfseðla og leiðrétt í samvinnu við lyfjafræðinga; þekki skráningarferli lyfja.
Efnisatriði
Lyfjalöggjöfin, lyfjadreifingarlöggjöfin, starfsgreinalöggjöfin, ávana- og fíkniefnalög-gjöfin, almannatryggingalöggjöfin, eiturefnalöggjöfin.
Námsfyrirkomulag
Lestur laga og reglugerða og verkefnavinna.
Kennslugögn
Lyfjalöggjöfin
Námsmat
Heimapróf í annarlok 60%
Verkefni á önn 40%