Áfangi

Samskipti-heilbrigðisgreinar

  • Áfangaheiti: SASK2SS05
  • Undanfari: Æskilegt er að nemandi sé búinn með a.m.k. 3 annir í framhaldsskóla. Nemandi sem tekur áfangann í fjarnámi þarf að vera orðinn 22 ára.

Markmið

Áhersla áfangans er á samskipti fólks í heilbrigðisþjónustu. Farið er í áhrif sjálfsmyndar og sjálfstrausts á samskipti og hvað heilbrigðisstarfsmenn þurfa að hafa í huga í samskiptum við skjólstæðinga, samstarfsfólk og aðstandendur. Fjallað er um mikilvægi samkenndar, jafnréttis, mannvirðingar og mannréttinda í samskiptum. Farið er í eflandi samskipti sem byggja á virðingu og fordómaleysi á jafnréttisgrundvelli. Fjallað er um menningarlegan mun í samskiptum. Sérstök áhersla er á fagleg samskipti, teymisvinnu og forystu heilbrigðisstarfsmanna.

Námsfyrirkomulag

Fyrirlestrar, verkefnavinna og umræður.

Kennslugögn

Kennari gefur upp námsgögn í upphafi annar.

Námsmat

Símat með lokaprófi. Verkefni í ýmsu formi. Umræður á moodle. Sjá nánar í kennsluáætlun hverju sinni.