Áfangi
FAL 201
- Áfangaheiti: FALÆ3HU02
- Undanfari: FALÆ3OB04
Markmið
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- latneskum hugtökum sem notuð eru um líffærafræði, sjúkdómagreiningar og aðgerðir
- flóknum latneskum orðum sem fjalla um tengsl heilbrigðis og sjúkdóma
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nota fagmál þegar upplýsingar eru skráðar í sjúkraskrá
- leita upplýsinga um fagmál þegar þörf er á
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- lesa úr flóknum fagorðaforða um líffærafræði og aðgerðir
- útskýra fagorð sjúkdómsgreininga og tengsl þeirra við önnur fagorð í sjúkraskrá
Efnisatriði
Í áfanganum er fjallað um latneskan orðaforða með áherslu á orðmyndun og skilning á hugtökum. Einnig er fjallað um viðamikinn fagmálsorðaforða er snýr að líffæra- og aðgerðarheitum. Áhersla er lögð á lestur sjúkdómagreininga ásamt æfingum í orðmyndun og málfræðigreiningum í þeim flokki.
Námsmat
Gagnvirk próf og æfingar eru gerðar alla önnina, lokapróf úr afmörkuðu efni.