Prófareglur

Fyrir alla nemendur sem taka próf:

  • Nemanda ber að mæta stundvíslega í þau próf sem hann er skráður í og hafa meðferðis persónuskilríki.

  • Nemandi skal leggja persónuskilríki á prófborð svo yfirsetumaður geti borið þau saman við nafnalista.

  • Nemendur mega fara úr prófi eftir að 30 mínútur eru liðnar af próftíma.

  • Próftíminn er tvær klukkustundir. Próf eru samin með það í huga að próftakan er ein og hálf klukkustund. Það þarf því ekki að sækja sérstaklega um lengri próftíma.

  • Slökkt skal á farsímum í prófi og þeir mega ekki vera á prófborði. Sama gildir um önnur raftæki.

  • Nemanda sem verður uppvís að svindli (notar óheimil hjálpargögn, veitir eða þiggur hjálp frá öðrum nemanda), er vísað úr prófi og hann fær falleinkunn í áfanganum.

  • Sömu reglur gilda á öllum prófstöðum okkar.

Athugið! Nemendur geta haft með sér hressingu í próf, en af tillitsemi við aðra mælum við með ílátum sem ekki skrjáfar í. 



Síðast uppfært 24.02.2022