Fjarnám FÁ

Í fjarnámi FÁ getur þú tekið stúdentspróf og hagnýtt starfsnám á heilbrigðissviði. Í boði eru hátt í 90 áfangar á önn.

Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir!

Auglysing-fjarnam-mynd-

Sumarönnin hefst 6. júní. Þann dag fá nemendur send aðgangsorð að kennslukerfinu Moodle ef þeir hafa staðfest skráningu með greiðslu. Athugið: kennsla í fjarnámi FÁ fer fram í gegnum Moodle en ekki í gegnum INNU.

Skráning fer fram í gegnum skráningarsíðu fjarnámsins.

Mikilvægt er að upplýsingar um umsækjanda séu rétt skráðar í skráningarferlinu, sérstaklega gsm-símanúmer. Athugið: ef þú greiðir með greiðslukorti annars aðila verður þú að vera með síma viðkomandi tiltækan í skráningarferlinu til að auðkenna greiðsluna. Hér má sjá hvaða áfangar eru kenndir á mismunandi önnum. Settu "sumar" inn í leitarstikuna "í boði" til að skoða þá áfanga sem eru í boði á næstu önn.

Hér er verðskrá fjarnámsins. Ekki er hægt að geyma greiðslu við skráningu né skipta niður á mismunandi tímabil. 

Í fjarnámi skólans er stuðst við kennsluumhverf Moodle.  Moodle er lokað kerfi. Allir nemendur fá  aðgang að þeim áföngum sem þeir eru skráðir í. Þar geta nemendur nálgast námsáætlanir, námsefni, verkefni og próf áfanga. Þeir hafa aðgang að kennara sínum í samskiptakerfi Moodle. Þeir hafa einnig aðgang að öðrum nemendum sem skráðir eru í viðkomandi áfanga. Námið er fyrst og fremst hugsað sem sjálfsnám undir handleiðslu kennara. Athugaðu að lokapróf eru ekki á rafrænu formi.

Nemendur í fjarnámi og dagskóla geta fengið Microsoft Office pakkann hjá skólanum. Aðgangurinn er virkur þann tíma sem þeir eru skráðir í skólann. Nánari upplýsingar hér

Mat á fyrra námi: 

Fjarnámsnemandi sem stefnir á að stunda nám á stúdentsbrautum eða heilbrigðisbrautum skólans getur lagt inn beiðni um mat á fyrra námi/mat á námi úr öðrum skólum, sjá hér. Mat á námsferli kostar kr. 10.000.- 

Einnig er hægt að óska eftir ráðgjöf um val á áföngum í fjarnámi FÁ, sjá hér. Ráðgjöfin miðast eingöngu við nám á brautum FÁ og er án endurgjalds.

Ef þú stundar nám í öðrum skóla og ætlar að taka áfanga í fjarnámi FÁ samhliða þarftu að fá staðfestingu frá þínum skóla um að þeir meti fjarnámsáfangann inn á braut skólans. Ef þú ert ekki í öðru námi, langar að prófa fjarnám en ert ekki viss um hvað skal velja er þér velkomið að leggja inn beiðni um ráðgjöf, sjá hér

Náms- og starfsráðgjöf: Nemendur fjarnámsins hafa aðgang að námsráðgjöfum skólans. Hægt er að senda tölvupóst á namsradgjof@fa.is

Aðstaða til náms: Nemendur fjarnámsins hafa aðgang að Setrinu sem er staðsett á jarðhæð skólans. Setrið býður upp á aðstöðu til náms og á ákveðnum tímum hefur nemandi aðgang að kennara í Setrinu, sjá upplýsingar hér.

Ertu með lesblindu/dyslexiu? eða annan sértækan námsvanda? Í lokaprófi getur þú óskað eftir því að fá að hlusta á spurningar prófsins og/eða skrá svör í tölvu (fjarnam@fa.is). Þú þarft ekki að sækja um lengri tími í lokaprófi, hann er lengdur. Hljóðbókasafn Íslands veitir nemendum með lesblindu/dyslexiu þjónustu, sjá Hér.

NÁMSBRAUTIR í  FÁ:

Stúdentsbrautir: 

                                                                                                      

Starfsnámsbrautir:   

 


Síðast uppfært: (06.03.2024)