    <language>is</language>
Fjölbrautaskólinn við Ármúla
FÁ-nemendur heimsóttu Héraðsdóm Reykjavíkur 
Nemendur í viðskiptalögfræði heimsóttu Héraðsdóm Reykjavíkur þar sem þeir fylgdust með aðalmeðferð í máli sem varðaði umferðarlagabrot.
Heimsóknin var liður í að tengja fræðilega umfjöllun námsins við raunverulega framkvæmd réttarkerfisins.
Í dómsal fengu nemendur innsýn í störf dómstóla, hlutverk dómara, saksóknara og verjenda sem og framgang aðalmeðferðar frá upphafi til enda.
Heimsóknin vakti mikinn áhuga nemenda og skapaði dýpri skilning á íslensku réttarkerfi og þeirri löggjöf sem fjallað er um í náminu.
Við þökkum starfsfólki dómstólsins fyrir góðar móttökur og fróðlega upplifun.
FÁ hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026
Fjölbrautaskólinn við Ármúla hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem við höfum verið á sem er að skapa vinnustað þar sem við höfum öll jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Fjölbreytt stjórnendateymi taka betri ákvarðanir, stuðla að sterkari menningu og betri árangri fyrir fyrirækið, viðskiptavini okkar og samfélagið allt.
Við þökkum Jafnvægisvoginni fyrir viðurkenninguna og ekki síst okkar frábæra starfsfólki, sem hefur lagt sitt að mörkum til að gera þetta að veruleika.
Jafnrétti er ekki verkefni sem lýkur heldur stöðug vinna, og við ætlum að halda áfram að gera enn betur.
Val fyrir vorönn 2027
Opnað hefur verið fyrir val á vorönn 2027. Síðasti valdagur er 31. október.
Með vali staðfestir nemandi umsókn sína um skólavist á næstu önn.]]></description>
Heimsókn í Borgarleikhúsið
AM Nemendur í félagsfræði fóru í mjög skemmtilega ferð í Borgarleikhúsið í vikunni. Í þeirri heimsókn var ekki farið að sjá leikrit heldur hvernig leikrit verður til en markmið ferðarinnar var að læra um menningu í leikhúsi með því að notast við vettvangsathugun. Hlynur samskiptastjóri Borgarleikhússins tók á móti hópnum og fór með þau í ævintýraferð um húsið. Þau fengu fræðslu um leikmunagerð, leikgervi og fleira. FÁ þakkar Hlyni og Borgarleikhúsinu kærlega fyrir frábærar móttökur. ]]></description>
Fréttabréf FÁ - október 2026
Októberfréttabréfið er komið út, stútfullt af fréttum og myndum frá fyrstu vikum haustannar.
Í hverjum mánuði sendum við út rafrænt fréttabréf. Markmiðið með því er að auka upplýsingaflæði til nemenda og aðstandenda og jafnframt að segja frá starfinu hér í skólanum.
Við hvetjum ykkur til að fylgjast með skólanum á netinu til að missa ekki af neinu skemmtilegu. Við erum dugleg að setja fréttir og myndir inn á samfélagsmiðlana sem sýna frá öllu því sem við erum að gera.
FÁ-nemar í Erasmus+ verkefni um falsfréttir í Frakklandi
Fimm nemendur FÁ dvöldu í Lannion í Frakklandi dagana 30. september–6. október ásamt kennurunum Ásdísi og Þórhalli.  Ferðin var hluti af Erasmus+ samstarfsverkefninu „Truth on Trial: Fake News, Media and the Rise of AI“, þar sem sjónum er beint að falsfréttum, fjölmiðlalæsi, samfélagsmiðlum og áhrifum gervigreindar á miðlun upplýsinga. ]]></description>
Skólafundur FÁ
Árlegur skólafundur Fjölbrautaskólans við Ármúla var haldinn miðvikudaginn 7. október. Einu sinni á ári er kennsla felld niður í eina kennslustund og tíminn nýttur til fræðslu og umræðna um málefni sem snerta nemendur, skólasamfélagið og samfélagið í heild.
FÁ tekur þátt í Samtali þjóðar
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, efnir til Samtals þjóðar laugardaginn 10. október, þar sem fólk um allt land kemur saman til að ræða það sem skiptir okkur máli og horfa til framtíðar.
Fjölbrautaskólinn við Ármúla tekur þátt í verkefninu og fer samtal okkar fram í Menntaskólanum við Sund. Nemendur FÁ, ásamt forráðafólki, eru hvattir til að mæta og taka þátt.
Húsið opnar kl. 13:30 og samtalið hefst kl. 14:00.
Samtal þjóðar byggir á þeirri hugmynd að samfélagið verði sterkara þegar við gefum okkur tíma til að hlusta hvert á annað, ræða saman og taka virkan þátt í að móta framtíðina.
Ungt fólk leiðir samtalið en fólki á öllum aldri er boðið að taka þátt og skapa þannig raunverulegt samtal kynslóða. Um allt land mun fólk hittast, hlusta hvert á annað og deila vonum sínum, gildum og hugmyndum um framtíðina.
Skráning og nánari upplýsingar um verkefnið má finna á talasaman.is.]]></description>
Nordplus Junior verkefni í Litháen
Vikuna 21. – 25. september fóru fimm nemendur og tveir kennarar úr FÁ til bæjarins Jonava í Litháen til að taka þátt í verkefninu Nordplus Junior – Consumerism 2028. Eins og nafnið gefur til kynna snýst verkefnið um neysluhyggju í nútímasamfélagi og þemað í á þessum fundi var matarsóun. Aðrir þátttakendur í verkefninu er framhaldsskólar frá Litháen, Danmörku og Svíþjóð. Nemendurnir okkar kynntu FÁ og héldu einnig fyrirlestur þar sem þau kynntu meðal annars hvernig reynt er að koma í veg fyrir matarsóun í skólanum og niðurstöðu rannsóknar á matarsóun á íslenskum heimilum sem þau framkvæmdu í aðdraganda ferðarinnar. Þá fór hópurinn einnig saman til borgarinnar Kaunas og fékk að kynnast því hvernig sorphirðu og endurvinnslumálum er háttað í Litháen.
Ferðin var fróðleg fyrir alla þátttakendur og bæði nemendur og kennarar komu heim sátt og margs vísari eftir skemmtilega daga í Litháen. Í mars á næsta ári mun síðan annar hópur nemenda fara til Stokkhólms í Svíþjóð þar sem haldið verður áfram með verkefnið.
Tölvuleikjaprófanir hjá Bunkhouse Games
Vel var tekið á móti nemendum FÁ þegar þau heimsóttu leikjafyrirtækið Bunkhouse Games í síðustu viku. Þar fengu þau kynningu á starfsemi fyrirtækisins og nýjum óútgefnum tölvuleik sem hefur verið í þróun um nokkurt skeið. Nemendur voru áhugasamir og spurðu meðal annars út í þróunarferli leiksins, sem ber heitið Flock Off!
Metþátttaka í skautaferð FÁ
Það var sannkallað líf og fjör í Skautahöllinni í Laugardal dag þegar nemendur FÁ skelltu sér á skauta í tilefni af Íþróttaviku Evrópu.
Gengið á Glym
Í FÁ er hægt að velja fjallgöngu/útivist sem áfanga og hægt er að velja hann í staðinn fyrir hefðbundins íþróttaáfanga. Boðið er upp á 4-5 göngur yfir önnina í nágrenni höfuðborgarsvæðissins.
Á laugardaginn var fyrsta ganga vetrarins þegar 44 nemendur ásamt kennurum Þórhalli og Úlfari  héldu inn í Hvalfjörð og gengu upp að Glym. Veðrið var frábært, sólin skein og haustlitirnir komnir. Hér má sjá myndir úr ferðinni. 
Heimsókn frá Þýskalandi
Í síðustu viku komu fjórir kennarar frá Nordhorn í Þýskalandi til okkar í heimsókn, þau Everina Brink, Senta Gerhardt, Holger Jouppien og HeinzGeorg Beckmann. Eins og oftast áður með heimsóknargesti okkar, þá voru þau himinlifandi með vikuna; alúðlegt viðmót allra starfsmanna og það flotta starf sem er unnið í skólanum.]]></description>
FÁ tekur þátt í Samtali um framtíðina
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, hefur óskað eftir samstarfi við framhaldsskóla landsins vegna Samtals um framtíðina sem fram fer dagana 9.–11. október. Markmiðið er að skapa vettvang fyrir samtal milli kynslóða um samfélagið og framtíðina.]]></description>
Nýnemaferð 2026
Nýnemaferð Fjölbrautaskólans við Ármúla var haldin miðvikudaginn 9. september og var ferðinni að þessu sinni heitið í Skopp að ósk nemendafélagsins. Nýnemar mættu hressir og kátir, hoppuðu upp í rútu og brunuðu af stað. Í Skopp gafst þeim kostur á að prófa fjölbreyttar afþreyingar, þar á meðal risastóran trampólíngarð, karókí herbergi, skotbolta, klifurvegg, Pixel-leiki, fótboltavöll og margt fleira.
Meðlimir nemendafélagsins voru duglegir að ganga á milli hópa og draga nýnema inn í ýmsa leiki og hópefli. Nemendur voru mjög áhugasamir um að prófa nýja hluti, taka virkan þátt og kynnast samnemendum sem þeir höfðu jafnvel ekki talað við áður.
Boðið var upp á pizzu og gos í hádeginu og því fór enginn svangur heim. Nýnemum gafst einnig kostur á að bjóða sig fram sem nýnemafulltrúar í nemendafélagið og hafa um 30 nýnemar þegar sótt um.
Í heildina litið gekk ferðin mjög vel. Nýnemar fengu tækifæri til að kynnast samnemendum sínum betur, eiga skemmtilega stund saman og styrkja félagsleg tengsl sín fyrir komandi skólaár.
Guli dagurinn
Starfsfólk FÁ tók þátt í gula deginum sem er í dag, 10. september  Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Það er von undirbúningshópsins að gulur september auki meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna. auk þess að vera til merkis um kærleika, aðgát og umhyggju. ]]></description>
FÁ tók þátt í treyjudeginum
Á Treyjudeginum, þann 4. september, klæðist fólk uppáhalds treyjunni sinni til stuðnings börnum með krabbamein. Er þetta einföld og skemmtileg leið fyrir vinnustaði, skóla og íþróttafélög til að sýna stuðning í verki. Það er styrktarfélagið Börn með krabbamein sem stendur að deginum en félagið styður börn með krabbamein og fjölskyldur þeirra með fjölbreyttum hætti. Dagurinn var fyrst haldinn á Englandi árið 2013 en fljótlega bættust Noregur, Svíþjóð og Danmörk við og nú Ísland.
Nemendur og starfsfólk FÁ tók að sjálfsögðu þátt í deginum og sýndi stuðning í verki við þetta þarfa málefni.
Fréttabréf FÁ - ágúst 2026
Fyrsta fréttabréf FÁ skólaárið 2026 - 2027 er komið út.]]></description>
Skráning í haustfjarnám
Innritun í fjarnám á haustönn 2026 er hafin. Kennslan hefst svo 2.september
Upphaf haustannar 2026
Nú er starfið að komast í fullan gang í skólanum eftir sumarleyfi og erum við öll spennt að hitta nemendur eftir gott sumarfrí.]]></description>