    <language>is</language>
Erlent samstarf | Fjölbrautaskólinn við Ármúla
Vel heppnuð Tyrklandsferð
Fimm manna hópur frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla heimsótti borgina Eskişehir í Tyrkland í seinustu viku til að fræðast um möguleika gervigreindar í námi og kennslu. Ferðin var liður í Erasmus-verkefninu We Shape the Future: Integrating AI, AR and VR in Education þar sem möguleikar sýndarveruleika, gagnaukins veruleika og gervigreindar eru skoðaðir með áherslu á STEM-greinar. Í Tyrklandi unnu nemendur frá Íslandi, Grikklandi og Tyrklandi saman í verkefnum þar sem gervigreind var notuð í eðlisfræði og efnafræði. Þátttakendur verkefnisins fengu einnig fræðslu um almenna notkun gervigreindar.
Farið var í dagsferð þar sem borgirnar Bursa og Iznik voru skoðaðar og bragðað á tyrkneskum mat, farið á útimarkaði, heimsótt moskur, nýlistasafn, fornminjasöfn og skoðað grafhýsi Osman Gazi, stofnanda Tyrkjaveldis.
Ítölsk ævintýri
Alice enskukennari fór með 5 nemendur í skólaheimsókn til Ítalíu 2. - 8. mars.  Þetta voru þau Ásthildur, Chandy Rós, Roksana Julia, Snorri Karl og Vladyslav.  Þar heimsóttu þau skólann Liceo delle Scienze Umane „Vittorino da Feltre“ í Bari.
Ferðalagið var sannkallað ævintýri.  Nemendurnir dvöldu hjá ítölskum fjölskyldum, sem gaf þeim einstakt tækifæri til að kynnast daglegu lífi og menningu á staðnum. Í skólanum tóku þau þátt í fjölbreyttum verkefnum í ensku, sögu og ítölsku, þar sem samvinna og samskipti við ítalska nemendur voru í fyrirrúmi.
Auk skólastarfsins fengu nemendurnir að kanna Taranto og nágrenni með leiðsögn heimamanna. Þar fræddust þau um sögu svæðisins og menningu á lifandi og skemmtilegan hátt.
Ferðin var ekki aðeins lærdómsrík heldur líka ævintýri sem gaf nemendunum dýrmæta innsýn í nýtt skólaumhverfi og allt aðra menningu, upplifun sem þau munu án efa muna lengi.
ÍSAN kennarar kynntu sér kennslu í Þýskalandi
Dagana 9.-11.mars heimsóttu ÍSAN kennararnir Hanna, Sigrún E og Sigrún G verkmenntaskólann KBS í Nordhorn í norðurhluta Þýskalands. Þetta var svokölluð starfskynning eða jobshadowing í gegnum Erasmus+. Markmiðið var að kynna sér móttöku og kennslu innflytjenda við skólann. Farið var í margar ólíkar kennslustundir og fengu þær að taka þátt í tungumáladegi sem haldinn er annað hvert ár við skólann þar sem nemendur kenna sín tungumál og kynna með öðrum hætti lönd sín. Mjög áhugavert og vonandi eitthvað sem FÁ tekur upp. Í heildina var heimsóknina sérlega vel skipulögð og lærdómsrík.]]></description>
Gagnaukinn veruleiki í Grikklandi
Tveir kennarar og þrír nemendur Fjölbrautaskólans við Ármúla fóru til Serres í Grikklandi í síðustu viku í tengslum við Erasmus+ verkefnið We Shape the Future. Í ferðinni fengu þátttakendur frá Íslandi, Grikklandi, Tyrklandi og Ítalíu fræðslu um gagnaukinn veruleika og með hvaða hætti er hægt að nýta tæknina í námi og kennslu. Hópurinn ferðaðist einnig um landið og skoðaði meðal annars Alistrati-hellirinn og borgina Þessalóniku. Frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla fóru þau Andri Ingvason raungreinakennari, Bjarki Þór Jónsson tölvukennari ásamt nemendunum Ester Sól, Söru Jóhönnu og Oliwiu.
Heimsókn í stofnanir Evrópusambandsins í Brussel
Sex nemendur úr Fjölbrautarskólanum á Ármúla tóku þátt í Erasmus+ verkefni í Brussel í Belgíu dagana 4.-10. febrúar ásamt kennurunum Ásdísi Magneu og Eddu Láru. Heimsóknin var hluti af stóru Erasmus+ verkefninu “Democracy and Freedom” sem unnið er í samstarfi við skóla frá Lannion, Frakklandi, Emden Þýskalandi og Santo Tirso Portúgal.  Nemendurnir sem tóku þátt í verkefninu voru þau Ragnheiður Sóley, Jenný, Vilberg Samuel, Hekla Sóley, Nadia Ursula og Eva.
Nemendur höfðu samið stefnuyfirlýsingu um framtíð ungs fólks í Evrópu sem þau kynntu fyrir nokkrum af ráðherrum Evrópusambandsins og að auki fengum við tvo fulltrúa frá Sendiráði Íslands sem hlýddu á kynningarnar. 
Heimsókn frá Svíþjóð
Við fengum góða heimsókn í FÁ í gær þegar þær Cecilia Nord kennari og Maria Pettersson rektor í Falu Frigymnasium í Svíþjóð komu í heimsókn.  Markmiðið með heimsóknni var að að kynna sér starfsemi heilbrigðisskólans, styrkja tengsl skólanna og kanna möguleika á samstarfi á sviði heilbrigðismenntunar. Gestirnir vonast til að unnt verði að sækja um Nordplus-verkefni á næstu mánuðum og leggja þannig grunn að áframhaldandi alþjóðlegu samstarfi.]]></description>
Draumalið í Lannion
Sex nemendur úr Fjölbrautarskólanum á Ármúla tóku þátt í Erasmus+ verkefni í Lannion í Frakklandi dagana 12.–18. nóvember ásamt kennurunum Ásdísi Magneu og Þórhalli. Heimsóknin var hluti af Erasmus+ verkefninu “Democracy and Freedom” sem unnið er í samstarfi við skóla frá Lannion, Frakklandi, Emden Þýskalandi og Santo Tirso Portúgal.
Nemendum var skipt upp í sex blandaða hópa með einn fulltrúa FÁ í hverjum hóp. Markmiðið var að draga fram helstu áskoranir Evrópubúa og leggja fram kröfur um lausnir sem verða lagðir fyrir þingmenn Evrópuráðsins í byrjun febrúar.
Nemendur fóru í heimsókn til Rennes, höfuðborgar Bretagne héraðsins. Þar tóku þeir þátt í ratleik, fengu ítarlega kynningu á dómshúsinu og nutu frjáls tíma í borginni áður en allir fóru saman út að borða. Einnig var eitt stærsta dagblað Frakklands, Ouest France heimsótt.
Nemendahópurinn var sannkallað draumalið, jákvæð og glöð, spurðu áhugaverðra spurninga, tóku virkan þátt í verkefninu sem skilaði niðurstöðum. Þau voru okkur öllum sér og sínum til sóma og gleði.
Framhaldið - næst á að hittast í Brussel í byrjun febrúar.......
Heimsókn frá Salamanca á Spáni
Núna í vikunni erum við með gesti frá Salamanca á Spáni.  Þær Yoanna, Carmen og Eva kenna á heilbrigðisbraut í I.E.S. Martínez skólanum sem er í Salamanca.  Þær eru hér til að kynna sér betur starfið í skólanum og þá sérstaklega í Heilbrigðisskólanum.  Við bjóðum þær velkomnar!]]></description>
Vinnustofur í sýndarveruleika 
Fjölbrautaskólinn við Ármúla tók á móti gestum frá Ítalíu, Grikklandi og Tyrklandi í september í tengslum við Erasmus+ verkefnið We Shape the Future: Integrating AI, AR and VR in Education. Boðið var upp á fjölbreytta dagskrá og vinnustofur þar sem þátttakendur könnuðu hvernig hægt er að nýta sýndarveruleika í námi og kennslu. Nemendur, kennarar og aðrir þátttakenndur lærðu meðal annars að skapa sína eigin sýndarheima og prófuðu sýndarveruleikabúnað þar sem þau gátu flogið um sólkerfið í geimskipi. Dagskráin endaði með vel heppnaðri ferð um Gullna hringinn ásamt fræðandi leiðsögn og klassískum íslenskum flatkökum með hangikjöti. ]]></description>
  Heimsókn frá Ferrentino á Ítalíu
Núna í vikunni vorum við með góða gesti í heimsókn frá Ferrentino á Ítalíu, þær Sara Colatosti og Daniela Meaglia.  Þær voru í undirbúningsheimsókn að kanna hvort skólarnir okkar geti unnið saman að verkefni. Við stefnum á að hefja samstarfið næsta haust  en þá koma fimm nemendur frá þeim í heimsókn til okkar.
Þær Edda Lára og Jeannette tóku vel á móti þeim, funduðu, sýndu þeim skólann og svo kíktu þær í kennslustundir.  Við hlökkum til frekari samstarfs með þeim Sara og Daniela.
Heimsókn frá Mataró á Spáni
Nú er skólastarfið komið á fullt og það þýðir að erlenda samstarfið okkar er líka hafið.  Á hverju ári fáum við fullt af heimsóknum frá aðilum frá skólastofnunum víða um heim sem vilja kynna sér starfið í skólanum okkar.
Þessa vikuna er hún Bàrbara Ruiz Soliva frá  Maristes Valldemia í Mataró, Spáni er heimsókn.  Hún kennir ensku, stærðfræði, hagfræði og nýsköpun. Nemendur hennar eru frá 12 til 16 ára. Á myndinni er hún í heimsókn í ensku hjá Alice.
BGreen kvikmyndahátíð í Portúgal
Hópur nemenda frá FÁ skellti sér til Portúgal á dögunum til að taka þátt í kvikmyndahátíðinni BGreen Festival sem var haldin í Santo Tirso, skammt frá Porto dagana 3. - 7. júní. Atli Sigurjónsson kvikmyndakennari og Þórhallur Halldórsson líffræðikennari fylgdu þeim Arngrími Búra, Helenu Freyju, Heorhii, Steini og Önu á hátíðina.
BGreen er hátíð fyrir ungt fólk sem leggur áherslu á umhverfismálefni og felst í því að nemendur gera stutta spotta (30-45 sek) út frá ákveðnu þema sem hátíðin leggur fram – í þetta skiptið var þemað „Smart solutions, green future“. Hundruðir skóla um allan heim sentu inn myndir og rúmlega tuttugu voru valdar, þar á meðal mynd frá okkar nemum.]]></description>
Sjúkraliðanemar tóku á móti nemum frá Portúgal og Tékklandi
Dagana 30. mars til 5. apríl sl. komu í heimsókn til okkar í Fjölbraut við Ármúla, sjúkraliðanemendur frá Tékklandi og Portúgal. Var heimsóknin þriðji og jafnframt síðasti fundur ERASMUS + verkefnis sem þessir þrír skólar hafa starfað saman að síðan undirbúningur hófst haustið 2023. Áður höfðu nemendur og kennarar frá FÁ heimsótt Trutnov í Tékklandi í janúar 2024 og svo Coimbra í Portúgal í október 2024.]]></description>
Erasmus verkefni – sérnámsbraut FÁ og Ängelholm gymnasiet í Svíþjóð
Fjórir starfsmenn sérnámsbrautar tóku þátt í „job shadowing“ verkefni með tveimur kennurum í Ängelholm á Skáni í Svíþjóð á þessari önn. Þetta voru Dóra, Finnbjörn, Hlynur og Inga Maggý á sérnámsbraut. Frá Ängelholm voru það Louise og Ulrika sem komu í heimsókn til okkar 7.-9.apríl. Þær fylgdust með kennslu í öllum okkar námshópum auk þess sem þær sýndu nemendum okkar myndband sem var kveðja frá nemendum í Ängelholm.]]></description>
Sýndarveruleiki og gervigreind í skólastarfi
Þrír kennarar Fjölbrautaskólans við Ármúla ferðuðust til Ítalíu á dögunum í tengslum við Erasmus+ verkefnið We Shape the Future: Integrating AI, AR and VR in Education. Um er að ræða samstarfsverkefni milli þriggja skóla sem staðsettir eru á Íslandi, Grikklandi og Tyrklandi auk aðkomu sérfræðinga frá Ítalíu sem veita leiðsögn og fræðslu. Markmið verkefnisins er að kanna með hvaða hætti sýndarveruleiki, gagnaukinn veruleiki og gervigreind getur nýst í námi og kennslu innan STEM-greina, þ.e.a.s. greina á sviði verkfræði, stærðfræði, raunvísinda og náttúruvísinda.
Sjálfbærar flutningsleiðir í Evrópu árið 2050
Dagana 26. febrúar – 5. mars tók FÁ þátt í Erasmus verkefninu Sustainable Mobility in Europe 2050). Fimm úrvalsnemendur frá skólanum tóku þátt; þau Birna Clara, Dísa María, Heorhii, Ísold og Míkah ásamt kennurunum Ásdísi og Þórhalli. Samstarfsskólarnir frá Sante Tirso í Portúgal, Lannion í Frakklandi og Emden í Þýskalandi sendu viðlíka fulltrúa.
Kynnisferð til Belgíu
ÍSAN kennararnir Sigrún Eiríks, Kristjana og Sigrún Gunnars fóru í mjög fræðandi og skemmtilega ferð til Belgíu í gegnum Erasmus+ þann 10.-14.mars sl. 
Megin tilgangur ferðarinnar var að kynna sér móttöku á innflytjendum í framhaldsskólum. Farið var í sérstakan móttökuskóla sem heitir OKAN þar sem nemendur dvelja í 1-2 ár og læra hollensku í bland við nokkur önnur fög eins og stærðfræði og frönsku en franska er annað opinbert mál Belgíu. 
Að honum loknum er þeim fylgt eftir í eitt ár en þá fara nemendur gjarnan í  systurskóla OKAN sem er hefðbundinn framhaldsskóli.  Mikið er lagt upp úr félagslega þættinum og reynt að finna íþróttir og tómstundir fyrir alla. 
Fundað var með ýmsum kennurum og námsráðgjöfum og ÍSAN kennarar fræddir um allt milli himins og jarðar. Þær sátu líka í ólíkum kennslustundum, fóru í göngu um Antwerpen þar sem OKAN nemendur sáu um leiðsögn og fræddu þær um borgina. Einnig fóru þær í súkkulaði verksmiðju sem er auðvitað stolt þeirra Belga og ómissandi þáttur í menningu þeirra. 
Vonast þær til að ferðin geti nýst til að miðla fróðleik og þekkingu Belgíu til okkar á Íslandi. 
A Green Day verkefnið
Á síðasta ári tók Fjölbrautaskólinn við Ármúla þátt í Erasmus verkefninu A Green Day í samstarfi við IES Tegueste frá Tenerife. Verkefnið byggði á samstarfi tveggja skóla þar sem markmiðið var að fræða hvorn annan um ýmis umhverfismál. FÁ hjálpaði IES Tegueste að undirbúa vinnu við umsókn um Grænfánann sem við höfum fengið afhentan í um 20 ár, fyrstir allra framhaldskóla. Í verkefninu fyrir hönd FÁ voru Andri Ingvason, Guðbjörg Eiríksdóttir og Tinna Eiríksdóttir en með þeim voru fimm nemendur sem stunda nám við skólann.]]></description>
Skólaheimsókn til Lycée Félix Le Dantec í Frakklandi
Dagana 6.-11. nóvember tók Fjölbrautarskólanum við Ármúla tók þátt í Erasmus verkefninu Second life í Lannion Frakklandi. Verkefnið er samstarfsverkefni, fjögurra skóla, en auk kennara og nemenda frá FÁ tóku þátt nemendur og kennarar frá Frakklandi, Þýskalandi og Portúgal. Þátttakendur frá FÁ voru kennararnir Þórhallur Halldórsson og Ásdís Þórðardóttir auk fimm úrvalsnemenda af Nýsköpunar- og Listabraut. Nemendur útbjuggu í sameiningu kynningu um sjálfbærni, skólann okkar og Reykjavík og útbjuggu hlut sem þau gáfu nýtt líf og kynntu.
Gestgjafinn, franski skólinn Lycée Félix Le Dantec, er staðsettur í bænum Lannion er tilheyrir héraðinu Bretagne, skaga sem teygir sig út í Atlandshafið. Strandlengja Bretagne er 1200 kílómetralöng og um hana fara gríðarlega miklar siglingar og mikið náttúrulíf sem er mikilvægt fyrir vistkerfi heimsins og er viðkvæmt fyrir umhverfisslysum og loftslagsbreytingum. Farið var í vettvangsferðir um fallegar strandlengjur og skilningur nemenda dýpkaður á viðkvæmni hringrásar vistkerfisins. Auk vettvangsferða og margvíslegra vinnusmiðja þar sem unnið var þvert á þjóðerni heimsóttum við öfluga endurvinnslu sem sinnir rúmlega 200.0000 manna samfélagi. Dagskráin var almennt mjög þétt alla daga. Vinnusmiðjur, málstofur og kynningar og nemendur settu upp stutta leikþætti fyrir hvern annan. Auk alls þessa gistu nemendur á heimilum franskra nemenda og kynntust í leiðinni fjölbreyttri franskri heimilismenningu. Nemendur voru á allan hátt til sóma í framkomu og þátttöku í verkefninu.
Sjúkraliðanemar í heimsókn til Portúgal
Kennararnir Edda Ýr Þórsdóttir og Þórunn Sigurðardóttir fóru með 5 frábæra sjúkraliðanemendur til Portúgal í október.
Ferðin hófst í Lissabon þar sem gist var á afar heimilislegu gistiheimili með villiköttum og páfagaukum. Eftir tvo daga í Lissabon var ferðinni heitið til Portó þar sem þær hittu sjúkraliðanemendur frá Portúgal og Tékklandi.
Fengu þær mjög góðar móttökur frá kennurum og nemendum í Portúgal. Heimsóttu skólann þeirra í Penacova og fengu að sjá þeirra aðstæður við nám, meðal annars verklega hjúkrun. Nemendur voru með sýnikennslu í hvernig gott er að flytja sjúklinga úr rúmi í stól. Einnig var sýnd fjötranotkun hjá sjúklingum með órólega eða ógnandi hegðun.
Nemendur Portúgal á veitinga og matreiðslusviði skólans matreiddu svo fyrir hópinn fínasta mat 😊
Einnig var endurhæfingarsjúkrahús upp í sveit 30 mín frá Portó heimsótt en ekki var hægt að sjá starfsemina í fullu fjöri þar sem sólarhringana á undan höfðu verið miklar rigningar sem ollu leka og vanda í húsnæði sjúkrahúsins þannig fáir skjólstæðingar gátu mætt þann daginn. Þó fengu þær að sjá aðstöðu sjúkraþjálfara og hápunktur þessarar heimsóknar var þátttaka og kennsla í hjólastólahandbolta undir handleiðslu sjúkraþjálfara og landliðsmanni í hjólastólahandbolta sem Portúgalir eru framarlega í.
Heimsókn á eitt stærsta sjúkrahús Evrópu var svo síðasta daginn þar sem heimsóttar voru tvær geðdeildir sem var afar áhugavert.
Nemendur okkar ásamt nemendum frá Tékklandi og Portúgal voru svo með kynningar á hlutverki sjúkraliða í lyfjagjöfum og vökvagjöf sjúklinga.
Frábær ferð í alla staði!