Umhverfismál | Fjölbrautaskólinn við Ármúla
Heimsókn til UN Women
Fulltrúar umhverfisráðs og nemendaráðs fóru í heimsókn til UN Women í dag og fræddust um starfsemina. Nemendur áttu innihaldsríkar samræður við starfsfólk UN Women og ræddu m.a. samfélagsmiðla, algrímið, hinsegin málefni og afhverju „woke“ virðist ekki lengur vera í tísku. Öll voru sammála um mikilvægi þess að mannréttindi fólks séu virt og að við þorum að tala máli þeirra sem eiga undir högg að sækja í samfélaginu.
Fyrr á önninni styrktu nemendur skólans starfsemi UN Women með rósasölu sem fór fram á Valentínusardaginn.  UN Women vinnur að jafnrétti og valdeflingu kvenna um allan heim. Helstu áskoranir starfseminnar í dag eru bakslag gegn mannréttindum, breytt heimsmynd og aukin átök.
Staða kvenna í heiminum
Á hverri mínútu eru 23 barnungar stúlkur þvingaðar í hjónaband
Á heimsvísu eru konur aðeins með 64% þeirra lagalegu réttinda sem karlmenn búa við
45.000 konur eru myrtar árlega af maka eða nákomnum ættingja
Aðeins 27% þingfólks í heiminum eru konur
Hjá UN Women er unnið gott og gríðarlega mikilvægt starf og hafa samtökin staðið fyrir vitundavakningu og herferðum. Mörg kannast t.d. við FO - Fokk ofbeldi húfurnar sem eru árlega í sölu hjá samtökunum. Í ár rennur ágóðinn til verkefnis UN Women í Palestínu.
FO Húfan 2026 - UN Women Ísland | unwomen.is
Umhverfisdagur á afmæli Vigdísar Finnbogadóttur
Umhverfisdagur skólans var haldinn í gær, miðvikudag þann 15. apríl á 96 ára afmælisdegi Vigdísar Finnbogadóttur. Það var sérlega viðeigandi tímasetning, því Vigdís lagði mikla áherslu á umhverfis og náttúruvernd í sinni forsetatíð og hefur haldið því áfram allar götur síðan.
Hvernig komum við í veg fyrir útrýmingu dýra? - frétt frá nemenda í umhverfisfræði
Útrýmingarhætta þýðir að lífvera eigi í hættu á að deyja út. Þetta er ekki aðeins notað fyrir dýr heldur líka plöntur og sveppi.
Til eru flokkar yfir hversu líklegt er að lífvera deyi út sem koma frá IUCN ((International Union for Conservation of Nature). Helstu flokkarnir eru CR (í bráðri útrýmingarhættu), VU (í viðkvæmri stöðu) og EN (í útrýmingarhættu). Rannsóknir frá IUCN sýna að eitt af fjórum landspendýrum er í útrýmingarhættu og eitt af þremur sjávarspendýrum
Það geta verið margar ástæður fyrir því að lífverur deyi út en aðal orsakirnar eru vegna loftslagsbreytinga eða af völdum manna. Manneskjur rífa niður heimili dýra, drepa þau fyrir minjagripi og við erum að einhverju leiti ábyrg fyrir loftslagsbreytingum.
Á Íslandi eru margar fuglategundir í útrýmingarhættu. Lundinn er í mikilli útrýmingarhættu og flokkast sem CR. Fálkinn er líka í mikilli útrýmingu og flokkast sem EN.
Það eru nokkur spendýr sem eru í útrýmingarhættu hér á landi og nokkur sem eru nú þegar dáin út. Bæði rostungurinn og sandlægjan eru útdauð á Íslandi og sléttbakurinn er í bráðri útrýmingarhættu og hefur verið það í mörg ár.
Geirfuglinn er örugglega þekktasta dæmið hér á landi um dýr sem hefur dáið út, ekki bara á Íslandi heldur í heiminum öllum. Hann var stærstur svartfugla og var um 70 cm á hæð. Geirfuglinn var víða um Norðvestur-Evrópu og við Nýfundnaland. Á Íslandi er talið að stofn geirfuglsins hafi alltaf verið frekar fámennur og var hann aðeins nokkur hundruð til þúsund para.
Mikil ofveiði var á geirfuglinum þar sem hann var ófleygur og hægur. Menn króuðu marga fugla saman í rétti, rotuðu þá eða snéru úr hálslið. Einn geirfugl gaf aðeins 1,5 kg af kjöti ásamt smá fitu og lýsi. Síðustu geirfuglarnir sem til voru í heiminum voru drepnir í Eldey á Íslandi árið 1844. Er þetta frægasta dæmi um útrýmingu dýrategundar hér á landi og er oft notað sem dæmi um áhrif ofveiði.
En í dag eru margar leiðir hér á landi til að koma í veg fyrir að þetta gerist aftur. Það eru til lög sem banna nánast alla fuglaveiði algjörlega eða á ákveðnum árstíðum, almennt er bannað að veiða villta fugla nema að ákveðin undartekning sé til. Einnig eru búsvæði fugla vernduð og vísindamenn gera sitt besta til að grípa inn eins fljótt og mögulega þegar stofn ákveðinna tegunda fer að minnka.
Flokkun matarleifa - frétt frá nemendum í umhverfisfræði
Af hverju er mikilvægt að flokka matarleifar? Flokkun matarleifa er stórt skref í átt að minnka losun gróðurhúsategunda. Gerðar voru mælingar á matarsóun á Íslandi frá 2019, og benda þær til þess að hver einstaklingur hendi í kringum 90 kg af mat árlega og mest af því er ekki flokkað.
Matarleifar eru dýrmæt auðlind sem hægt er að endurvinna. Þegar matarleifar safnast saman við heimili kemur úr þeim metangas og molta eða jarðvegsbætur. Metangasið getur verið nýtt sem bifreiðaeldsneyti og moltan nýtist til landgræðslu. Talið er að með þessum árangri takist að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.
GAJA (Gas- og jarðgerðarstöð) gerir ráð fyrir að magnið af matarleifum sem þau taka á móti á Suðurvesturhorninu jafngildi því að taka 10.000 fólksbíla sem keyra á jarðefniselds neyti af götunum. Magnið væri 24.000 tonn af matarleifum, sem kemur í veg fyrir losun á 20.000 tonnum af koltvísýringsígildi. Árið 2022 losaði urðunarstaður SORPU á Álfsnesi t.d.  94.000 tonnum af koltvísýringi í. Það er jafn mikið og 50.000 bílar sem keyra á jarðefniseldsneyti. Þessi árangur sýnir fólki og fyrirtækjum að það er mjög mikilvægt að gera enn betur þegar það kemur að því að flokka matarleifar.
Stefán Máni Unnarsson
Gabríel Bjarkason
Umhverfisdagur í FÁ í dag – Af hverju skiptir þetta máli?
Við búum í heimi þar sem loftslagsbreytingar, mengun og sóun náttúruauðlinda eru ein stærsta áskorun samtímans. Með því að fræðast og sýna ábyrgð, jafnvel með litlum skrefum, getum við haft raunveruleg áhrif. Að slökkva ljós, velja vistvæna ferðamáta, eða huga að bættri endurvinnslu eru einföld dæmi um aðgerðir sem skipta máli þegar margir taka þátt.
En af hverju skiptir þetta raunverulega máli?
Umhverfisdagurinn er tækifæri til að staldra við og hugsa um hvernig daglegar venjur okkar hafa áhrif – hvort sem það er í skólanum, heima eða í samfélaginu. Hvernig við neytum, flokkum, ferðast og notum orku hefur bein áhrif á náttúruna og loftslagið.
Erik Steinn Halldórsson
Hasanain Saad Abdulhussein Alzuhairi
Iustin Andrei Calin
Hvers vegna þurfum við að endurvinna gamla síma?
Í dag er alþjóðlegi rafrusladagurinn. FÁ tekur virkan þátt í deginum. Rafrusl eru öll raftæki, stór og smá; sem ekki eru lengur í notkun. Mikilvægt er að við komum þeim í réttan endurvinnslufarveg.
Draumur um jökul
Nemendur úr FÁ og MS fóru í síðustu viku á Sólheimajökul ásamt leiðsögumanni frá Asgard Beyond.  Ferðin var hluti af verkefninu Draumur um jökul, sem er samstarfsverkefni skólanna og Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, tileinkað alþjóðlegu ári jökla.
Fögnum íslenskri náttúru í dag og alla daga
Dagur íslenskrar náttúru var haldinn hátíðlega við skólann þann 16. september. Fjörug dagskrá var við skólann að tilefninu. Umhverfisráð nemenda stóð fyrir ratleik fyrir nemendur þar sem þau fundu Grænfánann, rúlluðu sér niður brekkuna á skólalóðinni og skoðuðu plöntur í kringum skólann.
Sjálfbærninefnd skólans (starfsfólk og stjórnendur) stóð vaktina við flokkunartunnur og aðstoðaði nemendur í vafa við flokkun. Allar deildir skólans gróðursettu íslenskar plöntur á svæði á skólalóðinni sem síðar meir verður útikennslustofa. Nú á hver deild skólans sína plöntu og munu þær fylgjast vel með henni. Plönturnar sem urðu fyrir valinu í ár eru Bæjarstaðabirki og Kasmír-reynir.
Íslensk lög með umhverfisboðskap voru spiluð bæði í matsal skólans og á kaffistofu starfsfólks. Þátttaka í deginum var til fyrirmyndar og gaman að sjá hvað nemendur tóku virkan þátt í ratleiknum.
Dagur íslenskrar náttúru hefur verið haldinn hátíðlegur síðan árið 2011. Tilgangur dagsins er að beina sjónum okkar allra að hinni einstöku náttúru landsins, þeim auðæfum sem í henni felast og mikilvægi þess að vernda hana og varðveita. Dagurinn er fæðingardagur Ómars Ragnarssonar en hann hefur lengi verið ötull talsmaður náttúruverndar.
Skundað á Þingvöll
Umhverfiskönnun
Tíunda grænfánanum flaggað
Hvað geta ungmenni gert fyrir jörðina?
Í FÁ er starfandi frábært umhverfisráð sem vinnur að umhverfismálum í skólanum.  Þau Matthildur Þóra og Guðmundur Ingi sem eru í umhverfisráði skrifuðu smá frétt sem birtist á visir.is í vikunni: Hvað geta ungmenni gert fyrir jörðina.
Vilja vernda jökla á Íslandi
Nemendur í umhverfisráði skólans fóru í heimsókn í Mannréttindahúsið og kynntust þeirri starfsemi sem þar er. Mannréttindahúsið sameinar fjölbreytt samtök sem berjast fyrir mannréttindum hvert á sínum forsendum. Þar er að finna t.d. KVAN, ÖBÍ réttindasamtök, UN Women á Íslandi og Félag Sameinuðu þjóðanna.
Með í ferðinni voru nemendur frá nágrannaskólanum okkar, Menntaskólanum við Sund. Mikið og gott samstarf hefur verið á milli skólanna tveggja í starfi umhverfisráðanna.
Tilgangur ferðarinnar var að fræðast um Mannréttindahúsið og eiga gott samtal við Pétur Hjörvar, tengilið UNESCO skólanna á Íslandi á vegum Félags Sameinuðu þjóðanna. Hópurinn ræddi um mikilvægi jökla á Íslandi og sótti um styrk á vegum loftslagssjóðs Reykjavíkurborgar sem styður við vitundavakningu á loftslagsbreytingum meðal ungs fólks. Styrkumsóknin ber heitið „Draumurinn um jökul“ og ef styrkurinn fæst verður farið í jöklaferð með það fyrir augum að taka upp og miðla fræðslumyndbandi um jökla meðal ungmenna á Íslandi.
A Green Day verkefnið
Vel heppnuð Litlu jól framhaldsskólanna
Litlu jól framhaldsskólanna
Umhverfisráð FÁ fékk á önninni 500 þúsund króna styrk til að efla samvinnu framhaldsskóla í umhverfismálum og halda umhverfisviðburð fyrir ungmenni í Reykjavíkurborg. Samstarfsskólar FÁ í verkefninu eru Tækniskólinn og Menntaskólinn við Sund.
Umhverfisráðin í skólunum þremur koma til með að skipuleggja viðburðinn saman og hafa tekið ákvörðun um að halda jólaviðburð þar sem umhverfismálin eru í brennidepli í öllu skipulaginu. Viðburðurinn verður haldinn þann 28. nóvember næstkomandi í FÁ og er opinn öllum framhaldsskólanemum, þvert á skóla.
Frábært að mæta og komast í gott jólaskap, gæða sér á kakói, hlusta á jólatónlist, styrkja góðgerðamál, föndra, næla sér í jólafötin á fataskiptimarkaði og eiga góða samverustund með vinum!
Öllum nemendum og ungmennum á framhaldsskólaaldri er boðið að koma í Fjölbrautaskólann við Ármúla á milli 14-16 þann 28. nóvember og eiga frábæra stund á Litlu jólum framhaldsskólanna!
Hægt verður að koma ókeypis með Hopp hlaupahjóli á staðinn, en sérstakur lendingarpuntkur verður settur fyrir framan skólann.
Láttu sjá þig á litlu - en risastóru jólum framhaldsskólanna! 🙂
Rafrusladagurinn haldinn um allan heim
Rafrusladagurinn var haldinn um allan heim í vikunni og tók skólinn þátt í vitundarvakningunni.
Áhersla rafrusladagsins í ár eru biluð, ónýt eða ónotuð raftæki sem fólk geymir á heimilum sínum. Mörg lítil raftæki er oft finna í skúffum heimila t.d. gamlir farsímar, snúrur, USB-lyklar, kortalesarar, leikjatölvur, smáheyrnartól og þess háttar.
Raftæki eru allir hlutir sem eru með kló, snúru eða rafhlöðu.
Til hvers að endurvinna raftæki?
Raftækjaúrgangur inniheldur mikið af verðmætum; sjaldgæfum málmum (t.d. kopar og gull) og fleiri efnum sem mikilvægt er að koma í endurvinnslu. Mörg raftæki innihalda auk þess efni sem eru skaðleg umhverfinu, fari þau ekki í réttan farveg.
Hver er skaðinn?
Aðeins um 17 prósent af rafrusli heimsins ratar í fullnægjandi endurvinnslu. Gríðarlegt magn af raftækjaúrgangi verður til á hverju ári og er umfangið sífellt að aukast. 62 milljón tonn af raf- og rafeindatækjaúrgangi á heimsvísu árið 2022. Þetta magn jafngildir því að 1,55 milljón vörubílum, hlöðnum rafrusli, yrði stillt upp við miðbaug jarðar og næðu allan hringinn.
Eftir hvern Íslending liggja um 24 kíló af rafrusli á ári. Samtals vegur árlegt rafrusl landsmanna um níu þúsund tonn.
Hvað getum við gert?
Við getum athugað hvort gömul raftæki liggi í skúffum og skápum og skilað þeim á næstu endurvinnslustöð. Elko tekur einnig á móti gömlum raftækjum og í sumum tilfellum er hægt að skila þeim og fá inneignarnótu í staðinn.
Viltu finna milljón?
Sumum raftækjum er hægt koma í viðgerð, gefa/selja og lengja þannig líftíma þeirra. Þá leynast oft raftæki í fullkomnu standi inná heimilum fólks sem safna ryki og bíða eftir nýjum áhugasömum eiganda.
Hægt er að kynna sér málið enn betur á vefsíðu Saman gegn sóun https://samangegnsoun.is/raftaeki/ og á vefsíðu Úrvinnslusjóðs https://www.urvinnslusjodur.is/um-urvinnslusjod/utgafa/tilkynningar/althjodlegi-rafrusldagurinn.
Umhverfisráð FÁ fær styrk úr Loftslagssjóði Reykjavíkurborgar
Borgarráð hefur samþykkt að veita 500.000 króna styrk fyrir verkefninu „Loftslagspartý framhaldsskólanna“. Verkefnið gengur út á að efla samvinnu framhaldsskóla í umhverfismálum og halda stóran loftslagsviðburð fyrir ungmenni í Reykjavíkurborg. Samstarfsskólar Fjölbrautaskólans við Ármúla í verkefninu eru Tækniskólinn og Menntaskólinn við Sund. Umhverfisráðin í skólunum þremur koma til með að skipuleggja loftslagsviðburðinn saman og verður hann haldinn fyrir lok árs.
Loftslagssjóður ungs fólks í Reykjavík er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Bloomberg philanthropies. Markmið sjóðsins er að virkja ungt fólk  í leit að lausnum á loftslagsvandanum en sjóðurinn veitir styrki til verkefna sem eru hönnuð og unnin af ungu fólki á aldrinum 15-24 ára og hafa beina skírskotun í  loftslagsáætlun borgarinnar.
Styrkurinn var afhentur við fallega athöfn í Höfða í dag og mættu fulltrúar frá umhverfisráði FÁ á afhendinguna, þær Thelma Rut Þorvaldsdóttir og Bríet Saga Kjartansdóttir. Við óskum þeim og umhverfisráðum skólanna innilega til hamingju með styrkinn.
Nemendur í umhverfisfræði á Þingvöllum
Gleðilegan Dag íslenskrar náttúru
Í tilefni dagsins gróðursettu nemendur og starfsfólk við fjölbrautaskólann fimm rifsberjarunna við enda lóðarinnar, þar sem leikskólinn Múlaborg er staðsettur. Var þetta gert í samstarfi við leikskólann og leikskólabörnin hjálpuðu til við gróðursetninguna. Vonin er að bæði skólastigin njóti góðs af berjunum sem þar munu vaxa um ókomna tíð. Gróðursetningin er liður í því að efla samstarf skólanna tveggja sem hafa verið vinaskólar til margra ára.