Áfangi

ÍÞR 111

  • Áfangaheiti: ÍÞRÓ1LS01
    Líkamsrækt/sund

Námsfyrirkomulag

Líkamsrækt fyrir nemendur 20 ára og eldri og nemendur sem eru með vottorð.
Nemendur setja sig í samband við íþóttakennara strax í upphafi annar. Þar fá þeir í hendurnar blöð með upplýsingum um skiladaga á tímum yfir önnina og fleira. Nemendur geta tekið þennan áfanga oft.

Kennslugögn

Mætingarblað sem nemandinn fær hjá íþróttakennara í upphafi annar.

Námsmat

Nemendur stunda íþróttir á eigin vegum utan skólatíma. Þeir fá sérstakt blað hjá íþróttakennara í upphafi annar og fá stimpla á það hjá við komandi líkamsræktarstöð eða félagi þegar þeir mæta í íþróttir. Nemendur skila blaðinu til íþróttakennara í lok annar og geta þá fengið einkunnina 7 fyrir áfangann. Nemendur geta mætt í verklegt íþróttapróf hjá íþóttakennara í síðustu kennsluviku til að hækka einkunnina.