Áfangi

Kvikmyndalæsi, handritaskrif

  • Áfangaheiti: KVIK2HS05
  • Undanfari: KVMG1ST05

Markmið

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
-helstu kvikmyndaformunum og einkennum og aðferðum þeirra
-hvað aðgreinir hin ýmsu kvikmyndaform
-myndmáli kvikmyndanna
-helstu aðferðum við handritsskrif
-hvernig persónusköpun á sér stað í kvikmyndum

Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
-greina tákn í kvikmyndum
-átta sig á duldum skilaboðum
-flokka kvikmyndir eftir greinum
-vinna eftir handriti

Hæfniviðmið -Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
-greina dramatíska uppbyggingu kvikmyndar
-skrifa eigið handrit með trúverðugum samtölum og persónum

Efnisatriði

Þessi áfangi er bóklegur og skiptist í tvo hluta. Annar hlutinn er fræðilegur þar sem farið í gegnum helstu kvikmyndaformin og þau greind og skoðuð. Teknar eru fyrir nokkrar kvikmyndir, þær rýndar og skilgreindar út frá ýmsum þáttum kvikmyndagerðar en þó sérstaklega út frá handriti. Í hinum hluta áfangans er farið í handritsskrif og nemandinn fær að dýpka skilning sinn á mikilvægi handritsins. Í áfanganum skrifa nemendur stutt handrit út frá eigin hugmynd og þetta handrit getur síðan orðið grunnur að lokaverkefni í KVMG3LO05. Þessir tveir hlutar fléttast saman gegnum önnina.

Námsfyrirkomulag

Nemendur gera ýmis æfingarverkefni í upphafi til að undirbúa handritsskrifin og átta sig á hvernig handrit virka og eru síðan að vinna að handriti gegnum önnina og skila þrem uppköstum. Einnig gera nemendur nokkur lítil verkefni uppúr kvikmyndum sem þeir sjá í Bíó Paradís.

Kennslugögn

Upplýsingar hjá kennara.

Námsmat

Verkefnavinna og símat.