Áfangi

Kvikmyndagerð, lokaverkefni

  • Áfangaheiti: KVMG3LO05
  • Undanfari: KVIK2HS05 eða KVMG2KT05

Markmið

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • uppbyggingu handrits og gildi þess í framleiðsluferli kvikmyndar
  • gildi hugmyndavinnu 
  • nauðsyn skipulagningar við kvikmyndaverkefni
  • grunnatriði í meðferð kvikmyndatökuvélar, hljóðupptöku og eftirvinnslu
  • klippingu og grunnatriðum myndmáls í kvikmyndum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • vinna í teymi
  • lesa úr handriti allar þær upplýsingar sem þar eru til staðar
  • vinna upptökuáætlun út frá handriti
  • sinna allri eftirvinnslu svo sem klippingu og hjlóðsetningu
  • meðhöndla þau tæki og tól sem tilheyra hverjum verkþætti af kunnáttu

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • halda utan um framleiðslu stuttmyndar eða heimildarmyndar
  • geta ályktað um tækjakost sem þarf til verkefnisins og vinna kostnaðaráætlun
  • leysa úr ágreiningi og vandamálum sem upp koma í framleiðsluferlinu
  • fjalla um listræna útfærslu verkefnisins og rökstyðja ákvarðanir

Efnisatriði

Þessi áfangi er lokaverkefni á Nýsköpunar- og listabraut. Í áfanganum vinna nemendur saman stuttmynd og beita þeirri þekkingu og leikni sem þeir hafa öðlast í námi sínu á brautinni. Farið er í öll helstu störf innan kvikmyndagerðar áður en nemendur velja sér hlutverk í framleiðsluferlinu. Nemendur skipta með sér verkefnum, vinna stuttmynd frá upphafi til enda og frumsýna myndina í lok annar.

Námsfyrirkomulag

Nemendur byrja á því að vinna saman kynningar á handritum úr áfanganum KVIK2HS05 – Handritaskrif og kvikmyndalæsi. Eitt eða tvö handrit eru svo valin til framleiðslu og nemendur skipta með sér verkefnum við framleiðsluna, undirbúa kvikmyndatökur, taka upp myndina eða myndirnar og sjá um eftirvinnslu. Áfanganum lýkur svo á frumsýningu myndanna sem unnin voru í áfanganum.

Kennslugögn

Kennslugöng frá kennara. Tölvur, símar, myndavélabúnaður skólans og leikmunir.

Námsmat

Símat og leiðsagnarmat.