Áfangi
KÓR 101
- Áfangaheiti: KÓRS1KÓ02
Markmið
Í Sönghópnum er leitast við að syngja fjölbreytta tónlist og nemendur fá að taka þátt í vali á lögum. Markmiðið er að ná tökum á því að syngja í hóp, bæði raddað og einraddað. Grundvallartækni í söng er kennd og einnig fá þeir nemendur sem vilja tækifæri til að syngja sóló eða í smærri hópum. Sönghópurinn vinnur einnig með leiklistinni og kemur að uppsetningu söngleiks.
Athugið að KÓR101 er valáfangi sem gefur 1 einingu. Áfanginn er próflaus.
Námsfyrirkomulag
Æft er einu sinni til tvisvar í viku, aukaæfingar fyrir útskrift.
Kennslugögn
Kórstjóri útvegar allar nótur sem notast er við.
Námsmat
Virkni, mæting, áhugi, metnaður og þátttaka nemenda vegur mest í námsmati. Um er að ræða símat.