Áfangi
RIT 123
- Áfangaheiti: RITV1NÁ05
- Efnisgjald: 0
Markmið
· Að nemendur temji sér nákvæmni í vinnubrögðum og auki jafnframt innsláttarhraða sinn.
· Að nemendur tileinki sér helstu aðgerðir ritvinnsluforritsins Word fyrir Windows og geti nýtt sér forritið við einfaldari verkefni.
Námsfyrirkomulag
· Í fyrstu verður lögð áhersla á að
nemendur tileinki sér sem mestan hraða í innslætti á lyklaborð
tölvunnar. Til að standast lokapróf þurfa nemendur að hafa náð
minnst 150 slaga hraða á mínútu sem gefur 5 í hraðaeinkunn - 300
slög á mínútu gefa hraðaeinkunnina 10.
·
Undirstöðuatriði ritvinnsluforritsins Word fyrir Windows kynnt,
s.s. vinnuumhverfi, valmyndir o.fl. og notkun forritsins kennd
með hjálp ritvinnsluverkefna. - Skilaskylda verkefna er 100% og
er nemendum ekki heimilt að taka lokapróf nema þeir hafi lokið
við allt námsefnið.
Kennslugögn
Office 2016 UTN - Upplýsinga- og tölvunotkun - Kennslubók með verkefnum fyrir byrjendur - Jóhanna Geirsdóttir.
Námsefni sem vísað er á í Moodle.
Námsmat
Hraðapróf 30%;
Ritvinnslupróf 30%;
Verkefnaskil 40%;