Fréttir

Alþjóðavika í FÁ 8.-11. apríl

8.4.2019

FÁ er kominn í alþjóðlegan búning fyrir Alþjóðavikuna sem hefst í dag en tilgangur vikunnar er að beina ljósinu á stöðu erlendra nema og hversu fallega fjölbreyttur skólinn er. Alþjóðlega nemendaráðið hvetur starfsfólk til að taka þátt í dagskránni sem er bæði fróðleg og skemmtileg. Í dag, mánudag - kl. 12:30 í fyrirlestrasal, ætlar Hildur Björgvinsdóttir, framkvæmdastýra SÍF að kynna stöðu erlendra nema á Íslandi.

Þriðjudaginn 9. apríl verður alþjóðlegt Kahoot - kl. 12:30 í matsal.

Miðvikudaginn 10. apríl mun Vala Bergsveinsdóttir frá Amnesty kynna stöðu flóttamanna á Íslandi - kl. 12:30 í fyrirlestrasal.

Fimmtudaginn 11. apríl verður Alþjóðapartý - kl. 12 í matsal.
Það verða veitingar, skemmtiatriði og erindi frá heiðursgestunum sem eru:
Eliza Reid, forsetafrú
Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi
Tanya Zharov, aðstoðarforstjóri Íslenskrar erfðagreiningar