Fréttir

Kiwanisklúbburinn Katla styrkir sérnámsbraut FÁ

18.12.2019

Kiwanisklúbburinn Katla mun taka að sér að styrkja tæknilega uppbyggingu við skynörvunarsundlaug við sérnámsbraut Fjölbrautaskólans við Ármúla. Verkefnið felst í því að koma upp ljósa- og hljóðkerfi við sundlaug skólans. Styrkurinn hljóðar upp á rúmar 3 milljónir og mun Kiwanisklúbburinn Katla sjá alfarið um þá fjármögnun. Vinna við undirbúning er þegar hafin.