Fréttir

Upphaf haustannar 2020

19.8.2020

Ágætu nemendur og forráðamenn,

Mánudaginn 24. ágúst hefst staðnám í FÁ samkvæmt stundaskrá.

Vegna Covid-19 gilda almennar sóttvarnareglur í skólanum: þ.e. handþvottur, sótthreinsun, forðast að snerta andlit og tveggja metra reglan þar sem henni verður komið við (nema í skólastofum má fara niður í 1 metra fjarlægð). Mötuneytið verður ekki með heitan mat fyrst um sinn, heldur eingöngu plastpakkaða matvöru.

Þá mun skólinn fylgja nýjum leiðbeiningum menntayfirvalda sem unnar voru í samvinnu við sóttvarnarlækni. Lesið þessar reglur vel og hafið þær að leiðarljósi á næstunni.

1. Öll eiga að gæta fyllsta hreinlætis og spritta sig um leið og komið er inn í skólann. Sprittstöðvar eru við alla innganga.

2. Suðurinngangur verður öllu jafna læstur en hann er eingöngu ætlaður fyrir nemendur á sérnámsbraut.

3. Öll eiga að spritta sig þegar gengið er inn í álmur skólans (sprittbrúsar eru við alla innganga skólans og innganga í álmur).

4. Gangar eru ætlaðir til þess að ferðast á milli kennslustofa. Stofur verða ólæstar og nemendur eiga að fara beint inn í sína stofu þegar komið er upp á ganginn, þ.e. ekki bíða fyrir utan stofuna eftir kennara.

5. Öll eiga að sótthreinsa sitt borð og stólbak eftir hvern tíma. Kennarar nýta síðustu fimm mínútur af kennslustund til að leiðbeina nemendum með hvernig þetta er framkvæmt. Munið að sótthreinsa borðið eins og þið væru að sótthreinsa fyrir ykkur sjálf.

6. Merkingar eru á gólfum/göngum sem vísa til þess hvaða leið á að fara þegar ferðast er á milli kennslustofa. Passa að virða eins metra reglu, víkja og hinkra ef fjölmennt er á ganginum.

7. Þau sem nota tölvur í almenningsrýmum eða tölvustofum eiga alltaf að nota hanska. Hanskar verða við allar tölvur og ef þeir klárast þarf að láta skrifstofu vita.

8. Nemendum er heimilt að borða nesti í stofum í frímínútum en það þarf að ganga vel frá öllu eftir sig.

9. Nemendur og kennarar í list- og verkgreinum eiga að nota andlitsgrímur. Nemendur eiga sjálfir að koma með grímur, án grímu fær nemandi ekki að koma inn í kennslustund.

10. Ef nemandi finnur til einkenna sem líkjast einkennum Covid á hann ekki að mæta í skólann. Ef kennarar eða starfsfólk verður þess vart að einstaklingar með einkenni Covid séu í skólanum á að vísa viðkomandi úr skólabyggingunni.

11. Nemendum í sóttkví er óheimilt að mæta í skólann. Ef nemendur hafa umgengist aðila sem hefur fengið staðfestingu á því að vera með Covid eiga þeir ekki að mæta í skólann.

Munum að við erum öll saman í þessu!