Fréttir

Nýnemaball

FÁ, Tækniskólans og Borgarholtsskóla

2.9.2022

Fyrsta ball vetr­arins, Nýnem­a­ballið, verður haldið á Spot í Kópa­vogi í sam­vinnu við nem­enda­félög Borg­ar­holts­skóla og Tækniskólans fimmtu­daginn 8. sept­ember næst­kom­andi.

Húsið opnar kl. 22:00 og verður gestum ekki hleypt inn eftir kl. 23:00. Ballinu lýkur svo kl. 01:00.

Fram koma:

VÆB, DJ Ragga Hólm, Inspector Spacetime, Stuðlabandið, Sigga Bein­teins og Birnir.

Miðasala er hafin.

Fyrsta sól­ar­hringinn geta ein­göngu nýnemar keypt miða. Þann 2. sept­ember kl. 10:00 opnar miðasalan svo fyrir aðra nem­endur Tækni­skólans, FÁ og Borg­ar­holts­skóla. Hægt er að kaupa miða hér.

Miðasala fyrir gesti utan skól­anna sem halda ballið opnar svo kl. 10:00 mánu­daginn 5. sept­ember.

Miðaverð er 4.000 kr. fyrir innanskólanema (nem­endur í FÁ, Borgó eða Tæknó) en 5.000 kr. fyrir aðra gesti.