Fréttir

Ólympus - frumsýning á föstudag

25.3.2019

Nú styttist í að gamansöngleikurinn Ólympus - Leikur að fólki, verði frumsýndur en frumsýningin verður núna á föstudaginn 29. mars í sal Fjölbrautaskólans við Ármúla. Verkið gerist í Grikklandi árið 390 f.kr. Þegar Seifur, æðsti guðinn á Ólympus, ákveður að skella sér í frí með eiginkonu sinni Heru, efnir hann til keppni milli guðanna til að ákveða hver skal taka við völdum í fráveru hans. Systkinin Artemis, Aþena, Díónýsus og Afródíta þurfa að fara niður á jörðu og keppast um hylli ungs pilts til að hreppa hásætið á Ólympus. Þau beita ýmsum klækjum til að snúa örlögunum sér í vil en það er síður en svo auðvelt að sigra þegar þau mega ekki gera það sem þau gera best - svindla og skemma hvert fyrir öðru...sjá meir.

Tónlistin er í höndum hljóðfæraleika úr skólanum undir stjórn tónlistarstjórans og söngkonunnar Lilju Daggar Gunnarsdóttur, en leikstjórn og handrit eru í umsjá leikarans Sumarliða V Snæland Ingimarssonar. Leikmynd er hönnuð og framleidd af nemendum í sviðshönnunaráfanga skólans.

Alls verða fjórar sýningar: 29.mars klukkan 20.00, 30.mars klukkan 20.00, & 31.mars klukkan 14 & 20. Miðaverð er 1.500 krónur en 1000 krónur fyrir starfsmenn og nemendur í NFFÁ.
Hægt er að panta miða með því að senda póst á fa.leikhopur@gmail.com.

Plakatið teiknaði Haukur Týr, nemandi við skólann.