Fréttir

Upphaf haustannar

11.8.2021

  • bilar_009

Stundatöflur verða aðgengilegar í INNU 16. ágúst.

Foreldrar/forráðamenn nýnema verða boðaðir í viðtal með börnum sínum við umsjónarkennara mánudaginn 16. ágúst eða þriðjudaginn 17. ágúst.

Boðun í viðtalið fer fram nokkrum dögum áður með tölvupósti og/eða símtali.

Kynningarfundur fyrir nýnema verður í fyrirlestrasal þriðjudaginn 17. ágúst kl. 13:00.

Kynningarfundur fyrir nýja nemendur sem fæddir eru 2004 eða fyrr, verður í fyrirlestrasal þriðjudaginn 17. ágúst kl. 14:00.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 18. ágúst. Allar upplýsingar um bókalista og námið má finna á heimasíðu skólans, www.fa.is.

Foreldrafundur verður haldinn mánudaginn 30. ágúst kl. 17:00.