Fréttir

Upphaf haustannar 2022

9.8.2022

Nú er starfið að komast í fullan gang í skólanum eftir sumarleyfi og er skrifstofa skólans nú opin. Við erum bjartsýn um að skólastarf verði með eðlilegum hætti þetta skólaárið!

Hér eru helstu dagsetningar framundan sem gott er að hafa í huga fyrir nemendur og forráðamenn:

16.ágúst - stundatöflur verða aðgengilegar í INNU.

Töflubreytingar fara fram 16. og 17.ágúst og verða eingöngu rafrænar í gegnum netfangið toflubreytingar@fa.is.

17.ágúst kl. 13.00 - kynningarfundur fyrir nýnema (2006) í fyrirlestrarsal skólans.

17.ágúst kl. 14.00 - kynningarfundur fyrir nýja nemendur (fædda 2005 eða fyrr) í fyrirlestrarsal skólans.

18.ágúst - kennsla hefst samkvæmt stundarskrá.

19.ágúst - skráning hefst í fjarnám á haustönn 2022.

Foreldrar/forráðamenn nýnema verða boðaðir í viðtal með börnum sínum við umsjónarkennara frá 15.ágúst. Boðun í viðtalið fer fram nokkrum dögum áður með tölvupósti og/eða símtali.

Foreldrafundur verður haldinn 29.ágúst kl. 17.00.

Stefnt er á að halda nýnemadag 31.ágúst.

Allar upplýsingar um bókalista og námið má finna á heimasíðu skólans.

Í lokin viljum við minna á að í upphafi skólaárs er líka gott að gott að glöggva sig á öllum helstu dagsetningum á skólaárinu og skrá hjá sér. Einnig hvetjum við alla til að fylgjast með fréttum úr skólastarfinu á facebook og instagram.

Endilega hafið samband við skrifstofu skólans ef einhverjar spurningar vakna.

Við hlökkum til að sjá ykkur öll á nýju skólaári.