Starfsmannaáætlun

Fjölbrautaskólinn við Ármúla hefur sett sér starfsmannastefnu og er hún hluti af námskrá skólans.
Í starfsmannaáætlun er starfsmannastefnan nánar útfærð í einstökum liðum.
Stjórnendur skólans bera ábyrgð á því að starfsmannastefnu og starfsmannaáætlun sé framfylgt.

Gagnkvæmar væntingar

Meðal þeirra almennu væntinga sem Fjölbrautaskólinn við Ármúla hefur til allra starfsmanna sinna eru að þeir sýni:

  • kostgæfni í starfi,
  • ábyrgð, sjálfstæði og frumkvæði,
  • vilja og hæfni til samstarfs,
  • sveigjanleika og aðlögunarhæfni.

 

Starfsmenn hafa einnig væntingar til skólans sem vinnustaðar, sem nauðsynlegt er að skólinn uppfylli til þess að hann geti ráðið til sín og haldið hæfum og áhugasömum starfsmönnum. Væntingar starfsmanna til skólans eru m.a. að:

  • þeir hafi tækifæri til að axla ábyrgð og taka þátt í mótun stefnu skólans og ákvörðunum um málefni sem varða störf þeirra sérstaklega,
  • skyldur og ábyrgð stjórnenda sé skýr,
  • starfsöryggi sé tryggt svo sem frekast er unnt,
  • þeim séu greidd sanngjörn laun fyrir störf sín,
  • þeim sé sýnt traust, tillitssemi og hreinskilni,
  • unnið sé að góðu samstarfi og vinnuanda,
  • vinnuaðstaða og félagslegt starfsumhverfi sé gott,
  • þeim sé veitt tækifæri til að menntast og dafna í starfi,
  • jafnréttissjónarmiða sé gætt á öllum sviðum.

 

Stjórnunarhættir

Skólanum er stjórnað í anda þeirrar meginstefnu að veita öllum starfsmönnum, í samræmi við hæfni þeirra og eðli starfsins, virka hlutdeild í stjórnun skólans og ákvörðunum. Stefnt skal að góðum og nútímalegum stjórnunarháttum, sem m.a. felast í jákvæðu viðhorfi til samstarfsmanna og virku upplýsingastreymi. Stjórnendum ber jafnan að hafa samráð við starfsmenn um málefni vinnustaðarins er þá varða og beita sér fyrir sem víðtækastri sátt um þau. Ákvörðunarvald og ábyrgð stjórnenda gagnvart starfsmönnum skal vera vel skilgreind og starfsmönnum ljós. Stjórnendur eiga að vinna að settum markmiðum og gera starfsmönnum kleift að taka framförum, bæði faglega og persónulega.


Upplýsingar, boðmiðlun og samskipti

Allar almennar upplýsingar um stefnu og starfsemi skólans skulu ávallt vera öllum starfsmönnum aðgengilegar og skiljanlegar. Stjórnendum ber skylda til að upplýsa starfsmenn um málefni sem varða störf þeirra sérstaklega, með reglulegum upplýsingafundum og öðrum slíkum aðferðum.

Skólinn vill stuðla að góðum starfsanda, þar sem ríkir traust, trúnaður, jafnræði og hreinskilni milli allra starfsmanna. Starfsmenn skulu temja sér kurteisi og háttvísi í framkomu og auðsýna hver öðrum tilhlýðilega virðingu, umburðarlyndi og jákvætt viðmót. Verði starfsmenn uppvísir að ósæmilegri framkomu í garð samstarfsmanna sinna, s.s. kynferðislegri áreitni eða einelti, teljast þeir brjóta grundvallarreglur samskipta á vinnustað. Skólinn hefur mótað leiðir til að taka á slíkum málum. Til að skapa góðan starfsanda vill Fjölbrautaskólinn við Ármúla:

  • hvetja starfsmenn til að ástunda og rækta fagleg samskipti sín á milli,
  • tryggja greiðan aðgang starfsmanna að gögnum, m.a. með öflugri upplýsingatækni
  • leggja áherslu á að boðmiðlun byggist á virðingu fyrir ólíku hlutverki starfa innan skólans.

Jafnrétti

Jafnréttisstefna Fjölbrautaskólans við Ármúla er að koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum kvenna og karla og jafna þannig stöðu kynjanna.  Allir einstaklingar skulu eiga jafna möguleika á að njóta eigin atorku og þroska hæfileika sína óháð aldri, kynferði, kynhneigð, kynþætti og stjórnmála- eða trúarskoðun. Mikilvægt er að starfsfólk virði jafnréttisstefnuna og vinni í anda hennar. Í þessu felst m.a. að óheimilt er að mismuna starfsfólki, t.d. eftir aldri, kynferði, kynþætti, kynhneigð, fötlun, þjóðerni, trúar- eða stjórnmálaskoðunum.

Lesa má nánar um jafnréttisstefnu skólans.

 

Ráðning og starfsferill

Fjölbrautaskólinn við Ármúla vill ráða til sín og hafa í þjónustu sinni hæfa, dugandi og heiðarlega starfsmenn sem þykir eftirsóknarvert að starfa við skólann vegna þeirra vinnubragða, starfsaðstöðu og starfsanda sem þar er og vegna þeirra launakjara sem þar eru í boði. Áður en starfsmaður stofnar til atvinnurekstrar eða hyggst taka við starfi í þjónustu annars aðilja samhliða starfi ber honum að skýra skólameistara frá því, sbr.  lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

 

Starfsmannaþörf

Allar ákvarðanir um ráðningu nýrra starfsmanna skulu vera vel ígrundaðar og rökstuddar í samræmi við langtímaáætlanir um starfsmannaþörf. Mikilvægt er að það liggi ljóst fyrir áður en auglýst er hvert sé markmiðið með starfinu. Liggja skal fyrir starfslýsing fyrir öll störf sem ráðið er í. Þegar starfsmaður lætur af störfum skal starfið endurskoðað og jafnframt metið hvort ráða eigi í það að nýju.

 

Starfsauglýsingar

Ráðningar skulu byggðar á menntun og reynslu þess sem ráðinn er og hæfni til að inna starfið vel af hendi.  Við ráðningar skal ávallt hafa hliðsjón af gildandi ákvæðum starfsmannastefnu um jafnréttismál. Gengið skal frá ráðningum með formlegum hætti.  Skólinn stefnir að því að taka tillit til ábyrgðar, frammistöðu og árangurs við ákvörðun kjara til þess að geta laðað að og haldið sem hæfustu starfsfólki.

 

Ráðningar

Ákvörðun um ráðningu í starf skal vera rökstudd og byggð á málefnalegum sjónarmiðum. Almennt er ráðning í upphafi til reynslu og er reynslutíminn sex mánuðir. Þessi tími gefur tækifæri til að meta hvort starfið henti starfsmanninum og starfsmaðurinn starfinu til frambúðar og er lögð áhersla á að reynslutíminn sé vel nýttur til að meta það, m.a. með starfsmannasamtali.

 

Móttaka og fræðsla nýrra starfsmanna

Skólinn leggur áherslu á að taka vel á móti nýjum starfsmönnum og að þeim líði vel í starfi frá byrjun. Nýir starfsmenn skulu fræddir bæði um almenna starfsemi skólans og þann hluta starfseminnar sem lýtur sérstaklega að starfssviði þeirra og um réttindi sín og skyldur. Næsti yfirmaður er ábyrgur fyrir því að nýjum starfsmanni sé veitt slík fræðsla.

 

Starfsþróun

Skólanum er það kappsmál að veita öllum starfsmönnum trausta og góða starfsþjálfun og viðhalda henni og auka hana með endur- og símenntun. Starfsmenn skulu leitast við að laga sig að síbreytilegum kröfum, sem starfið gerir til þeirra, svo sem vegna faglegrar og tæknilegrar þróunar, og vera reiðubúnir að þjálfa sig til nýrra og breyttra verkefna.

 

Starfsmannasamtöl

Reglubundin starfsmannasamtöl eru vettvangur samræðu milli starfsmanna og stjórnenda. Tilgangur samtalanna er að stuðla að velferð starfsmanna, gæðastjórnun og bættum starfsárangri sem og gagnkvæmri upplýsingamiðlun. Samtölunum er ætlað að auðvelda starfsmönnum og stjórnendum að ná settum markmiðum, að skerpa vitundina um þessi markmið og þá ábyrgð sem þeim fylgir og að skapa gagnkvæmt traust. Mikilvægt er að starfsmannasamtöl séu vandlega undirbúin, þeim sé fylgt eftir, úrræði séu skipulögð og trúnaðar sé gætt á öllum stigum.

 

Starfslok

Skólinn vill koma til móts við óskir starfsfólks um starfslok, t.d. með því að breyta starfshlutfalli eða starfsskyldum síðustu misserin í starfi. Fastráðnu starfsfólki gefst kostur á starfslokaviðtali þegar það lætur af starfi. Viðtalið gefur skólanum tækifæri til að draga lærdóm af ábendingum starfsfólks um það sem betur má fara í skólastarfinu.

 

Starfsskilyrði

Fjölbrautaskólinn við Ármúla leitast við að tryggja hverjum starfsmanni sínum þau skilyrði og þá aðstöðu sem hann þarf til að rækja starf sitt vel.

 

Launamál

Fjölbrautaskólinn við Ármúla vill búa starfsfólki sínu góð launakjör, starfsskilyrði og starfsaðstöðu svo að hann geti ráðið til sín og haldið hæfu starfsfólki. Starfslýsingar skulu ávallt liggja fyrir og þess skal sérstaklega gætt að starfsfólki sé ekki mismunað í launum vegna kynferðis eða annars.

 

Vinnutími og fjölskylduábyrgð

Fjölbrautaskólinn við Ármúla vill sporna gegn óhóflegu vinnuálagi starfsfólks og tryggja að það fái notið nægilegrar hvíldar. Skólinn vill eftir megni taka tillit til óska starfsmanna um vinnutíma og starfshlutfall. Lögð er áhersla á góða ástundun og stundvísi.

Fjölbrautaskólinn við Ármúla leitast við að skapa starfsmönnum sínum aðstæður til að samræma þær skyldur sem starfið og fjölskyldan leggja þeim á herðar. Starfsmönnum skal gefinn kostur á tímabundinni lækkun á starfshlutfalli og sveigjanlegum vinnutíma vegna fjölskylduábyrgðar eftir því sem unnt er og án þess að það hafi áhrif á starfsframa þeirra. Skólinn hvetur feður sérstaklega til þess að nýta sér möguleika sína til að samræma starfs- og fjölskylduábyrgð.

 

Starfsaðstaða og öryggi starfsmanna

Fjölbrautaskólinn við Ármúla skal láta hverjum starfsmanni í té aðstöðu sem gerir honum kleift að sinna starfi sínu af kostgæfni. Tekið skal sérstakt tillit til starfsmanna með fötlun.

Fjölbrautaskólinn við Ármúla leitast við að tryggja öllum starfsmönnum sínum gott starfsumhverfi sem fullnægir ströngustu kröfum um öryggi, hollustu og vinnuvernd.

 

Heilbrigði, heilsurækt og félagsstarf

Æskilegt er að starfsmenn leggi rækt við eigin heilsu og ástundi heilbrigt líferni. Skólinn leggur starfsmönnum sínum til aðstöðu til heilsuræktar og stuðlar með því að bættri líðan og heilsu þeirra.

Fjölbrautaskólinn við Ármúla er tóbaks-, áfengis- og vímuefnalaus vinnustaður. Í þessu felst m.a. að óheimilt er að vera undir áhrifum áfengis og vímuefna í starfi. Komi í ljós að starfsmaður eigi við áfengis- eða vímuefnavanda að stríða ber stjórnendum að bregðast við og leita úrlausna.

Fjölbrautaskólinn við Ármúla vill efla samvinnu og samneyti starfsmanna og stuðla að ýmiss konar samtökum þeirra á milli, t.d. með því að leggja þeim til aðstöðu eftir því sem unnt er.

Lesa má nánar um lýðheilsustefnu.


(Síðast uppfært 16.2.2022)