Viðburðarlisti
Grænfáni afhentur
Fjölbrautaskólinn við Ármúla fær Grænfánann afhentan formlega, í áttunda skipti, fimmtudaginn 28. janúar.
Lesa meiraStundatöflur birtar og töflubreytingar
INNA opnar þriðjudaginn 5. janúar 2021 með stundatöflum og bókalistum nemenda. Boðið verður upp á töflubreytingar 5. og 6. janúar EINGÖNGU RAFRÆNT. Senda skal óskir um breytingar á netfangið toflubreytingar@fa.is
Lesa meiraSkráning í fjarnám fyrir vorönn 2021
Skráning í fjarnám, fyrir vorönn 2021, hefst 4. janúar og mun standa til 15. janúar. SKRÁNING HEFUR VERIÐ FRAMLENGD TIL 18. JANÚAR. Smelltu hér til að skrá þig í fjarnám.
Lesa meiraÚtskrift
Útskrift haustannar 2020 verður föstudaginn 18. desember og hefst kl. 13:00.
Streymt verður frá athöfninni og verður slóð á streymið aðgengileg á heimasíðu skólans á útskriftardag.
Innritun í dagskóla fyrir vorönn 2021
Opnað verður fyrir umsóknir í dagskóla 1. nóvember nk. Hægt verður að sækja um skólavist til 10. desember. Hér er tengill á innritunarvef Menntamálastofnunar.
Lesa meiraVal áfanga fyrir vorönn 2021
Nú geta nemendur dagskólans valið áfanga fyrir vorönn 2021. Hægt er að ganga frá vali til 6. nóvember nk. í INNU. Leiðbeiningar má finna hér.
Lesa meiraFyrirlestur um andlega líðan á tímum Covid-19
Andri H. Oddsson skólasálfræðingur verður með fyrirlestur, um andlega líðan á tímum Covid-19, miðvikudaginn 9. september kl. 12:30-12:55 í sal skólans.
Lesa meiraFyrsti kennsludagur haustannar 2020
Fyrsti kennsludagur haustannar 2020, í dagskóla, er mánudagurinn 24. ágúst.
Lesa meiraSkráning í fjarnám á haustönn 2020
Skráning í fjarnám á haustönn 2020 hefst 23. ágúst og mun standa til 3. september.
Skráningartími hefur verið framlengdur til 6. september.
Stundatöflur birtar og töflubreytingar
Stundatöflur og bókalistar nemenda verða aðgengileg í INNU miðvikudaginn 19. ágúst. Boðið verður upp á töflubreytingar 20. og 21. ágúst. Senda skal tölvupóst á netfangið toflubreytingar@fa.is.
Lesa meiraÚtskrift
Útskrift vorannar 2020 verður þriðjudaginn 26. maí.
Kl. 13:00 verður athöfn fyrir nemendur Heilbrigðisskólans, nemendur á Nýsköpunar- og listabraut og nemendur sem útskrifast með viðbótarnám til stúdentsprófs.
Kl. 15:00 verður athöfn fyrir nemendur á öllum bóknámsbrautum.
Lesa meiraÚtskrift Sérnámsbrautar
Útskriftarathöfn Sérnámsbrautar verður mánudaginn 25. maí kl. 17:00.
Lesa meiraSkólaþróunardagur
Fjölbrautaskólinn við Ármúla tekur þátt í skólaþróunardegi, ásamt 13 öðrum framhaldsskólum, föstudaginn 6. mars. Öll kennsla fellur niður þann dag.
Lesa meiraÁrdagur
Fimmtudaginn 5. mars verður árdagur haldinn í skólanum. Þann dag verður dagurinn brotinn upp og verður lítið um hefðbundna kennslu. Það er þó mætingarskylda þann dag.
Lesa meiraKvikmyndahátíð framhaldsskólanna
Nemendur Fjölbrautaskólans við Ármúla taka þátt í Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna sem verður haldin í Bíó Paradís dagana 29. febrúar - 1. mars.
Lesa meiraGettu betur - undanúrslit
Lið Fjölbrautaskólans við Ármúla mun etja kappi við lið Borgarholtsskóla í undanúrslitum Gettu betur föstudaginn 28. febrúar. Viðureigninni verður sjónvarpað beint á RÚV og hefst útsendingin kl. 19:45.
Lesa meiraÁrshátíð NFFÁ
Nemendafélagið heldur árshátíð sína fimmtudaginn 27. febrúar. Árshátíðin verður haldin í skólanum og hefst kl. 18:30. Síðar um kvöldið verður slegið upp balli á Spot ásamt nemendafélögum Fjölbrautaskólans í Breiðholti og Tækniskólans.
Lesa meiraSkautahöllin - Lífshlaupið
FÁ tekur þátt í Lífshlaupi ÍSÍ. Í tengslum við Lífshlaupið fara starfsmenn og nemendur skólans í Skautahöllina, miðvikudaginn 12. febrúar, frá kl. 11:45-12:30. Gengið verður fylktu liði frá skólanum kl. 11:30.
Lesa meiraGettu betur
Fjölbrautaskólinn við Ármúla mætir Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, í átta liða úrslitum Gettu betur, föstudaginn 7. febrúar. Viðureigninni verður sjónvarpað beint á RÚV og hefst kl. 20:10.
Lesa meiraMúsíktilraunir - kynning
Fulltrúar Músíktilrauna koma í skólann og kynna keppnina föstudaginn 31. janúar. Kynningin verður í fyrirlestrarsalnum og hefst kl. 12:45.
Lesa meiraUppistand í hádeginu
Þórhallur Þórhallsson verður með uppistand í matsalnum í hádegishléinu, miðvikudaginn 22. janúar, í boði nemendafélagsins.
Lesa meiraGettu betur
Fjölbrautaskólinn við Ármúla komst í aðra umferð í Gettu betur. FÁ og Fjölbrautarskóli Suðurnesja munu mætast þriðjudaginn 14. janúar kl. 20:30. Viðureigninni verður útvarpað á rás tvö. Einnig er hægt að fylgjast með á netslóðinni https://www.ruv.is/null
Lesa meiraFyrsti kennsludagar vorannar 2020
Kennsla á vorönn 2020 hefst miðvikudaginn 8. janúar skv. stundatöflu
Lesa meiraKynningarfundur fyrir nýja nemendur
Kynningarfundur fyrir nýja nemendur verður þriðjudaginn 7. janúar kl. 13:00 í sal skólans.
Lesa meiraStundatöflur birtar og töflubreytingar
Stundatöflur og bókalistar nemenda verða aðgengileg í INNU mánudaginn 6. janúar. Nemendur og forráðamenn hafa aðgang að INNU með rafrænum skilríkjum eða íslykli.
Boðið verður upp á töflubreytingar dagana 6. janúar kl. 10:00-15:00 og 7. janúar kl. 8:00-10:00 og kl. 13:00-16:00
Lesa meiraÚtskrift
Útskrift haustannar 2019 verður föstudaginn 20. desember. Athöfnin fer fram í sal skólans og hefst kl. 13:00.
Lesa meiraÆfing fyrir útskriftarathöfn
Æfing fyrir útskriftarathöfn verður fimmtudaginn 19. desember kl.16:00.
Lesa meiraPrófasýning og birting einkunna
Miðvikudaginn 18. desember verða einkunnir nemenda aðgengilegar í INNU. Sama dag verður prófasýning frá kl. 12:00 - 13:00.
Lesa meiraHrekkjavökuteiti
Nemendafélagið mun standa fyrir allsherjar Hrekkjavökugleði miðvikudaginn 30. október. Um kvöldið verður Hrekkjavökuteiti sem hefst kl. 19:00.
Lesa meiraAndri Snær Magnason heimsækir FÁ
Andri Snær Magnason rithöfundur verður með fyrirlestur í skólanum miðvikudaginn 23. október nk. Andri ætlar að segja frá nýútkominni bók sinni 'Um tímann og vatnið' og ræða loftslagsmál. Fyrirlesturinn verður í sal skólans og hefst kl. 11:40.
Lesa meiraSkólafundur
Þriðjudaginn 15. október, kl. 9:20-10:20, verður haldinn skólafundur. Í stað hefðbundinna kennslustunda munu nemendur og kennarar ræða málefni skólans. Þeir nemendur og starfsmenn sem eiga ekki tíma í stundatöflu, á þessum tíma, koma saman í sal skólans.
Lesa meiraNýnemakvöld
Nemendafélagið stendur fyrir nýnemakvöldi í skólanum föstudaginn 4. október. Gleðin hefst kl. 19:00 og mun standa til kl. 23:00.
Lesa meiraStöðupróf í erlendum tungumálum
Stöðupróf verður í erlendum málum, eingöngu fyrir nemendur skólans, þriðjudaginn 27. ágúst kl. 16:00.
Hægt er að taka próf eftirtöldum tungumálum: dönsku, ensku, frönsku, spænsku og þýsku.
Skráning fer fram á skrifstofu skólans til fimmtudagsins 22. ágúst. Próftökugjald er kr. 13.500.-
Foreldrafundur
Foreldrafundur verður haldinn mánudaginn 26. ágúst, í skólanum, og hefst hann kl. 17:00.
Lesa meiraSkráning í fjarnám á haustönn 2019
Skráning í fjarnám, á haustönn 2019, hefst 23. ágúst og mun standa til 3. september.
Lesa meiraFyrsti kennsludagur haustannar 2019
Kennsla, á haustönn 2019, hefst skv. stundaskrá mánudaginn 19. ágúst.
Lesa meiraKynningarfundir með nýjum nemendum
Kynningarfundur með nýnemum (nemendur sem koma beint úr 10. bekk) verður föstudaginn 16. ágúst kl. 13:00.
Kynningarfundur með öðrum nýjum nemendum verður sama dag kl. 14:00.
Lesa meiraStundatöflur birtar og töflubreytingar
Stundatöflur haustannar 2019 verða birtar í INNU fimmtudaginn 15. ágúst. Boðið verður upp á töflubreytingar dagana 15. og 16. ágúst.
Lesa meiraÚtskrift
Útskrift vorannar 2019 verður föstudaginn 24. maí nk í hátíðarsal skólans. Athöfnin hefst kl. 13:00.
Lesa meiraÆfing fyrir útskriftarathöfn
Æfing fyrir útskriftarathöfn verður fimmtudaginn 23. maí kl. 16:00
Lesa meiraPrófasýning og birting einkunna
22. maí verða einkunnir nemenda aðgengilegar í INNU. Sama dag verður prófasýning frá kl. 11:00 - 13:00.
Lesa meiraPáskafrí
Páskafrí byrjar mánudaginn 15. apríl. Kennsla hefst aftur mánudaginn 29. apríl.
Skrifstofa skólans verður lokuð þennan tíma.
Skólaheimsókn frá Frakklandi
Kennarar og skólastjórnendur frá College du Lazaro, í Frakkalandi, heimsækja FÁ 8. - 12. apríl og kynna sér starfsemi skólans.
Lesa meiraHeimsókn frá Slóveníu
Skólastjórnendur og fulltrúar menntamálaráðuneytis Slóveníu heimsækja FÁ 8. apríl nk.
Lesa meiraLAN
Nemendafélagið stendur fyrir LAN móti 5. - 7. apríl nk. í skólanum. Smelltu hér til að skrá þig á mótið
Lesa meiraFrumsýning: Ólympus leikur að fólki
Leikhópur FÁ frumsýnir leikritið Ólympus: leikur að fólki í hátíðarsal skólans.
Frumsýning verður föstudaginn 29. mars kl. 20:00
2. sýning: laugardaginn 30. mars kl. 20:00
3. sýning: sunnudaginn 31. mars kl. 14:00
4. sýning: sunnudaginn 31. mars kl. 20:00
Miðaverð: kr. 1.500.-
Miðaverð fyrir félaga í nemendafélaginu: kr. 1.000.-
Miðapantanir: fa.leikhopur@gmail.com
Lesa meiraSkólaheimsókn frá Bandaríkjunum
21 nemandi og fimm kennarar, frá Bandaríkjunum, heimsækja FÁ fimmtudaginn 28. mars og ætla að kynna sér enskukennslu í skólanum.
Lesa meiraVal fyrir haustönn 2019
Opið verður fyrir val áfanga, í dagskóla, vegna haustannar 2019 til 5. apríl. Smelltu hér til að fá leiðbeiningar
Lesa meiraSkólaheimsókn frá Danmörku
24 nemendur, ásamt tveimur kennurum, frá Odder Gymnasium í Danmörku heimsækja FÁ mánudaginn 25. mars.
Lesa meiraOpið hús
Fjölbrautaskólinn við Ármúla verður með opið hús fimmtudaginn 21. mars kl. 16:30 - 18:00.
Lesa meiraSkólaheimsókn frá Hollandi
Skólastjórnendur frá Hollandi heimsækja FÁ til að kynna sér starfsnám og AM deildina fimmtudaginn 21. mars
Lesa meiraTónlistarkeppni Fjölbrautaskólans við Ármúla
Nemendafélagið stendur fyrir tónlistarkeppni FÁ. Keppnin verður haldin fimmtudaginn 7. mars í sal skólans.
Lesa meiraSkólaheimsókn frá Þýskalandi
Nemendur og kennarar frá Jenisch-Gymnasium í Hamborg, Þýskalandi, heimsækja skólann.
Lesa meiraHeimsókn frá Eistlandi
18 skólastjórnendur frá Eistlandi sem og fulltrúar menntamálaráðuneytis heimsækja skólann.
Lesa meiraLífshlaupið 6. - 19. febrúar
Framhaldsskólakeppni Lífshlaupsins hefst miðvikudaginn 6. febrúar nk. Fjölbrautaskólinn við Ármúla er skráður til leiks og stefnir á sigur.
FÁ byrjar keppnina í Skautahöllinni í Laugardal 6. febrúar. Gengið verður fylktu liði frá skólanum kl. 11:30.
Nemendur og starfsmenn eru hvattir til að taka þátt og skrá hreyfingu sína á vef Lífshlaupsins https://www.lifshlaupid.is
Lesa meiraGettu betur
Fjölbrautaskólinn við Ármúla keppir við Menntaskóla Borgarfjarðar í Gettu betur miðvikudaginn 9. janúar. Viðureignin hefst kl. 20:00 og verður útvarpað á Rás 2.
Lesa meiraNýnemafundur
Fundur með nýjum nemendum verður mánudaginn 7. janúar, kl. 13:00, í sal skólans.
Lesa meiraSkráning í fjarnám
Opnað verður fyrir skráningu í fjarnám 4. janúar. Skráning mun standa yfir til 15. janúar.
Lesa meiraStundatöflur birtar
Opnað verður fyrir INNU og stundatöflur 4. janúar. Töflubreytingar verða föstudaginn 4. janúar frá kl. 13 - 15 og mánudaginn 7. janúar frá kl. 9 - 15.
Lesa meiraÚtskrift
Útskrift haustannar 2018 verður föstudaginn 21. desember nk. í sal skólans. Athöfnin hefst kl. 13:00.
Lesa meiraPrófasýning og birting einkunna
19. desember nk. verða einkunnir birtar í INNU og prófasýning verður frá kl. 11:00 - 13:00.
Lesa meiraUppistand í hádeginu
'My Voices Have Tourettes' verður með uppistand í hádegishléinu, miðvikudaginn 28. nóvember, í boði nemendafélagsins.
Lesa meiraSvavar Knútur kemur í heimsókn
Svavar Knútur flytur fyrir okkur tónlist í hádegishléinu miðvikudaginn 21. nóvember, í matsalnum, í boði nemendafélagsins.
Lesa meiraSkólaheimsókn á vegum Erasmus+
Fyrsti fundur með nemendum og kennurum í Erasmus+ skólasamstarfsverkefninu "Yes Europe 2" fer fram í FÁ. Þátttakendurnir koma frá Þýskalandi, Grikklandi, Slóveníu og Ítalíu.
Lesa meiraFyrirlestur um örplast
Föstudaginn 16. nóvember, kl. 13:00, mun Rannveig Magnúsdóttir flytja fyrirlestur um örplast í sal skólans.
Lesa meiraEmil H. Petersen rithöfundur heimsækir skólann
Emil H. Petersen heldur fyrirlestur um furðusögur, í sal skólans, fimmtudaginn 15. nóvember kl. 12:00.
Lesa meiraSkólaheimsókn frá Svíþjóð
Tveir kennarar frá Platengymnasiet í Motala, Svíþjóð, koma á undirbúningsfund vegna Nordplus samstarfsverkefnisins "Tourism challenging for sustainable development".
Lesa meiraGrænfáninn afhentur
Mánudaginn 5. nóvember mun skólinn fá Grænfánann afhentan í sjötta sinn. Athöfnin mun fara fram í sal skólans og hefst kl. 12:00. Á meðal gesta verður Lilja D. Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
Lesa meiraHrekkjavakan
Hrekkjavakan verður haldin hátíðleg í FÁ miðvikudaginn 31. október. Allir eru hvattir til að mæta í skólann í búningum. Veitt verða verðlaun fyrir besta búninginn. Í hádeginu mun töframaðurinn John Tómasson skemmta okkur.
Lesa meiraSkólaheimsókn frá Svíþjóð
15 kennarar frá Skövde í Svíþjóð koma til að skoða Heilbrigðisskólann og kynna sér kennslu fyrir AM nemendur
Lesa meiraSkólaheimsókn frá Finnlandi
14 nemendur frá Pohjois-Tapiola skólanum, í Finnlandi, heimsækja FÁ þriðjudaginn 30. október ásamt kennurum sínum.
Lesa meiraSkólaheimsókn frá Þýskalandi
Tveir kennarar frá skólanum Kaethe-Kollwitz-Schule í Marburg, Þýskalandi, koma til að kynna sér kennslu í félagsfræði, ensku sem og kennslu á sérnámsbraut.
Lesa meiraLaser tag-mót Nýnemaráðs
Þriðjudaginn 23. október verður laser tag-mót fyrir nýnema haldið í skólanum. Mótið, sem er eingöngu ætlað nýnemum, hefst kl. 18:00.
Lesa meiraHaustfrí 19.-22. október
Föstudaginn 19. október og mánudaginn 22. október verður haustfrí í skólanum. Skrifstofa skólans verður lokuð þá daga.
Lesa meiraMenningarmixer AM nemendaráðs
Nemendur af erlendum uppruna bjóða í menningarmixer. Allir nemendur eru boðnir velkomnir. Mixerinn verður fimmtudaginn 18. október, hér í skólanum, og hefst kl. 18:00.
Lesa meiraSkólaheimsókn frá Lettlandi
Kennarar og nemendur frá Riga Comercial School í Lettlandi koma í stutta heimsókn til að kynna sér fjarnám í FÁ.
Lesa meiraSkólaheimsókn frá Hollandi
Fjórir kennarar frá Roc de Leijgraaf í Hollandi heimsækja FÁ til að kynna sér kennslu fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku.
Lesa meiraNýnemaferð
Ferð fyrir nýnema verður farin fimmtudaginn 30. ágúst. Lagt verður af stað frá skólanum kl. 9:00. Áætluð heimkoma er kl. 21:00.
Lesa meiraNýnemadagur
Nemendaráð stendur fyrir alls konar sprelli, nýnemum til heiðurs, og grillar fyrir þá í hádeginu miðvikudaginn 29. ágúst.
Lesa meiraSumarlokun skrifstofu
Skrifstofa skólans er lokuð vegna sumarleyfa 25. júní til 6. ágúst.
Lesa meiraAlþjóðlegi netöryggisdagurinn 2018 er í dag
Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 2018 er í dag. Slagorð dagsins í ár er: Sköpum, tengjum og deilum virðingu: betra net byrjar hjá þér!
Lesa meira