Leiðbeiningar um val í INNU

Með vali staðfestir þú umsókn þína um skólavist á næstu önn.
Hér er myndband með leiðbeiningum um hvernig velja skal í Innu.

Hvað á að velja?

  1. Til að komast í Innu þarftu rafræn skilríki.
  2. Þegar í Innu er komið, ferðu inn á „Námið“ efst til hægri og velur þar „Námsferill – braut“. Þá sérðu brautarkröfuna og hvaða áföngum þú hefur lokið.
  3. Hluti bóknámsbrauta er frjálst val. Á heimasíðu skólans er listi yfir alla áfanga skólans og innihald þeirra.
  4. Ef þú ert á bóknámsbraut þarftu að hafa í huga að af heildarfjölda eininga, sem er 200, mega einingar á 1. þrepi ekki fara upp fyrir 66 og einingar á 3. þrepi ekki vera færri 40.
  5. Í aðalval skaltu velja að hámarki 7 áfanga auk íþrótta. Í varaval skaltu velja 2-3 áfanga. Mikilvægt er að hafa áfanga í varvali því það er notað ef áfangi /áfangar í aðalvali komast ekki í töflu, eða eru felldir niður.

Hvernig á að velja?

  1. Smelltu á VAL (í efsta dálki lengst til hægri).
  2. Veldu önn.
  3. Veldu áfanga úr lista með því að smella á hann.
  4. Skipt er á milli aðalvals og varavals með því að draga á milli kassa.
  5. Til að fá nánari upplýsingar um valinn áfanga, er bendli rennt yfir hann.
  6. Til að eyða áfanga er smellt á x.
  7. Þegar allir áfangar hafa verið valdir, skaltu smella á „Vista val“.

Umsjónarkennarinn þinn aðstoðar þig við valið ef þú þarft. Ef þú gengur ekki frá vali er litið svo á að þú ætlir ekki að þiggja skólavist vorönn og þú færð hvorki greiðsluseðil né stundatöflu.

Gangi þér vel!

 

(Síðast uppfært 20.12.2019)