Deilimarkmið


  • Að mæta þörfum nemenda af öðru þjóðerni með sérstöku námsefni sem taki mið af tungumálafærni þeirra. Taka má sem dæmi samantektir, skýringar á hugtökum og einfaldar spurningar úr námsefni þeirra áfanga sem reynast þessum nemendum erfiðastir.
  • Að vinna að gagnkvæmri aðlögun. Nýta má bakgrunn nemenda til að miðla þekkingu og eyða fordómum.
  • Að vinna gegn einangrun erlendra nemenda.
  • Að stuðla að þátttöku erlendra nemenda í félagslífi skólans.
  • Að nemendaráð og nemendafélag vinni að því að nemendur með erlendan bakgrunn taki þátt í félagsstarfsemi skólans.
  • Að hvetja til kennslu sem tekur mið af fjölbreytileikanum og ólíkum menningarheimum.



(Síðast uppfært 6.9.2018)