Áfangi
Lífeðlissálfræði
- Áfangaheiti: SÁLF3LÍ05
- Undanfari: SÁLF2AA05
Markmið
Að nemendur:
- öðlist grundvallarþekkingu á taugakerfi mannsins, einkum heilastarfsemi
- átti sig á tengslum heilastarfsemi við hegðun, hugsun og tilfinningar
- fái innsýn í helstu aðferðir til að rannsaka heilastarfsemi og kynnist nýlegri þekkingu á þessu sviði
- þekki áhrif geðlyfja á geðsjúkdóma
- þekki áhrif algengustu vímuefna m.a á lífefnafræði heilans og skynjun
- þekki lífeðlislega gerð augans og öðlist skilning á sjónskynjuninni
- þekki lífeðlislega gerð eyrans og öðlist skilning á heyrnarskynjuninni
- fái innsýn í helstu hugmyndir um hlutverk svefns og drauma. M.a nýlegar rannsóknir á eðli svefnsins
Námsfyrirkomulag
Kennslugögn
Hugur, heili og hátterni. Aldís Guðmundsdóttir og Jörgen Pind. Mál og menning. (2003)
Námsmat
Kaflapróf, verkefnaskil, vinnumappa, virkni og mæting.