Námskraftur

Verkefnið Námskraftur er í dag á vegum Fjölbrautarskólans við Ármúla, en verkefnið var áður samstarfsverkefni FÁ, Námsflokka Reykjavíkur og Mennta- og barnamálaráðuneytisins. Kennsla fer fram á Suðurlandsbraut 32, 2. hæð, 108 Reykjavík í björtu og rúmgóðu húsnæði.

Námskraftur er einnar annar námsúrræði á framhaldsskólastigi. Námið hentar þeim nemendum sem treysta sér ekki beint inn í stóran framhaldsskóla og þurfa aukinn stuðning í byrjun eða hafa ekki náð að fóta sig í framhaldsskóla.

Markmiðið með Námskrafti er að styrkja nemendur með stuðningi og eftirfylgni til aukinnar ábyrgðar á námi sínu, með það að leiðarljósi að þau geti nýtt sér nám í framhaldsskólum og standist þær kröfur sem slíkt nám gerir til þeirra.

Í Námskrafti eru kenndar bæði bóklegar og verklegar greinar. Boðið er upp á fjórar grunngreinar: stærðfræði (STÆR1UN05, STÆR1GR05 og/eða STÆR2AM05), lífsleikni (LÍFS1ÉG03), félagsfræði (FÉLV1IF05 ) og listir (MYNL1MG05). Þá er verkefnatími í töflu, þar sem nemendum býðst stuðningur við verkefnavinnu í því fagi sem þau vilja fá auka aðstoð við. Nemendur geta einnig skráð sig í áfanga í FÁ ef áhugi er fyrir hendi, en í boði eru áfangar á borð við tónlistaráfanga, íþróttaáfanga eða fjallgönguáfanga.

Stundaskrá er samfleytt frá morgni fram yfir hádegi. Tímar hefjast fjóra morgna kl. 8:30 (á mánudögum kl. 9:20) og kennt er flesta daga til 13:30. Alla jafna er hringt í nemendur að morgni ef þeir eru ekki mættir, og ef ekki næst í nemendur sem eru undir 18 ára er hringt í forráðamann.

Námsráðgjafar aðstoða nemendur við að sækja um framhaldsskóla áður en náminu lýkur og er umsóknum þeirra fylgt eftir.

Nánari upplýsingar fást hjá Jódísi Káradóttur náms- og starfsráðgjafa Námskrafts og Elínu Guðbjörgu Bergsdóttur náms- og starfsráðgjafa og kennslustjóra Námskrafts í gegnum netfangið namskraftur@fa.is