6.4. Nemendur af erlendum uppruna

Allir nemendur FÁ eiga að fá sömu tækifæri til menntunar, óháð uppruna og þjóðerni. Hvers kyns fordómar og mismunun er aldrei liðin. Í FÁ er mjög fjölbreyttur nemendahópur og þ.á.m. margir nemendur af erlendum uppruna. Stefna skólans er að móta jákvæð viðhorf til fjölmenningar, jafnt meðal kennara sem nemenda, svo hver og einn nemandi fá notið sín á sínum forsendum. Nemendur skólans eiga að fá að njóta þeirrar fjölbreytni og tækifæra til menntunar sem felast í samveru og samskiptum við fólk af ólíkum uppruna og þjóðerni.

Upplýsingar um leiðir að þessum markmiðum og móttökuáætlun fyrir nemendur af erlendum uppruna eru á stoðkerfissíðu.


(Síðast uppfært 2.11.2012)