Sjúkraliðanám

Sjúkraliðanám var fyrst sett á stofn á Íslandi árið 1965 að danskri fyrirmynd. Námið fór fram á Sankti  Jósefsspítalanum í Reykjavík og á  Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri. Námið var  9 mánuðir og skiptist í bóklegt nám og starfsnám á sjúkrahúsum. 

Fyrstu sjúkraliðarnir voru útskrifaðir frá Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri vorið 1966.

Sjúkraliðaskóli Íslands var stofnaður árið 1975 og var starfræktur undir stjórn Heilbrigðis-og tryggingaráðuneytisins.  Sjúkraliðaskólinn var lagður niður árið 1990 og námið flutt í Fjölbrautaskólann við Ármúla/Heilbrigðisskólann. Fyrstu sjúkraliðarnir voru útskrifaðir frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla/Heilbrigðisskólanum haustið 1991. 

Framhaldsnám fyrir sjúkraliða hófst við skólann í janúar 1992.


(Síðast uppfært 1.2.2012)